Ákærðir fyrir fjölda lögbrota: Lífsýni kom upp um mennina 8. júlí 2015 19:42 Húsráðandi segir þjófana hafa tekið sopa af áfengisflösku sinni, sem lögregla hafi tekið til rannsóknar og í kjölfarið upplýst málið. vísir/getty
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært tvo karlmenn á fertugsaldri fyrir fjölda lögbrota, þar á meðal tvö innbrot, þjófnað, vopnalagabrot, og fíkniefna- og umferðarlagabrot. Mál þeirra verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á morgun.Fengu sér vínsopa Innbrot mannanna tveggja áttu sér stað á Suðurnesjum í ágúst árið 2013. Höfðu þeir á brott með sér sjónvörp, tölvur, myndavélar og önnur raftæki, ásamt fatnaði, verkfærum og fleiru. Húsráðandi sem Vísir ræddi við í kvöld sagði lífsýni hafa komið upp um mennina. Þeir hafi drukkið úr áfengisflösku sem hafi verið inni í vínskáp og lögregla tekið með sér til rannsóknar. Áætlað verðmæti stolnu munanna nemur hundruðum þúsunda.Sjá einnig: Skelfileg heimkoma eftir ÞjóðhátíðFimmtíu kannabisplöntur og heimagerð kylfa Þá er annar mannanna jafnframt ákærður fyrir brot á vopnalögum árið 2013, en á heimili hans fannst heimagerð kylfa, öxi, handjárn og hnífur. Sá er jafnframt ákærður fyrir fíkniefnalagabrot því við húsleit fundust fimmtíu kannabisplöntur sem og tæp þrjú grömm af amfetamíni. Honum er jafnframt gefið að sök að hafa í janúar 2014 ekið undir áhrifum áfengis- og fíkniefna. Í ákærunni segir að þegar lögregla hafi stöðvað manninn við aksturinn hafi hann fleygt út bakpoka með innihélt tæp þrjátíu grömm af amfetamíni. Í bíl hans fannst kylfa, járnrör og teygjubyssa. Maðurinn var í kjölfarið sviptur ökuréttindum ævilangt. Nokkrum dögum síðar var hann aftur stöðvaður af lögreglu og mældist amfetamín í blóði hans og kannabis fannst í bíl hans.
Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Innlent Fleiri fréttir Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun „Ó, mér líður svo vel“ Vindmyllan á stærð við tvær Hallgrímskirkjur Draga aflvana bát til hafnar nær Öndverðarnesi Rýnt í flókna stöðu Icelandair Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Segir EES-samninginn einan og sér ekki duga lengur Reynsluboltinn í Hæstarétti hættur: „Þetta var komið gott“ Nýr meirihluti kynnir forgangslistann Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Sjá meira