Hafa deilt barnaklámi í 22 mánuði Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 27. ágúst 2015 07:00 Íslendingar deila hefndarklámmyndum af samlöndum sínum á erlendri síðu. Nordicphotos/afp
Ekkert gengur hjá lögreglu að berjast við erlent spjallborð þar sem Íslendingar hafa deilt og óskað eftir hefndarklámmyndum af samlöndum sínum, mörgum hverjum undir átján ára aldri, í 22 mánuði. Frá því lögreglu barst tilkynning um síðuna hefur ekki gengið að finna út úr því hvar síðan er hýst eða hverjir reka hana. Á síðunni er að finna barnaklám sem og neteinelti. Síðastliðna viku hafa tæplega þrjátíu ummæli verið rituð á síðuna. „Síðan er vistuð erlendis og við höfum átt í miklum erfiðleikum með að finna út hverjir reka hana og hverjir eiga hana. Svo eru lög á milli landa mismunandi og erfið,“ segir Einar Guðberg Jónsson rannsóknarlögreglumaður. Einar segir þá aðgerð að loka fyrir aðgang að síðum eins og þessari vera marklausa þar sem stór hluti Íslendinga sé tengdur við netið í gegn um staðgengilsnetþjón erlendis, til dæmis til að horfa á efni í gegn um afþreyingarveituna Netflix, og geti því farið fram hjá lokununum. Einar segir áður hafa verið lokað fyrir sambærilegar síður. „Ég held að það hafi ekki endilega verið skoðað neitt til hlítar,“ segir Einar, spurður um hvort hafi komið til greina að fara sömu leið og loka á síðuna sem um ræðir. Sömuleiðis segir Einar síðuna virka þannig að IP-tölur þeirra sem á hana skrifa séu ekki vistaðar. Það þýðir að þótt eigendur síðunnar myndu sýna lögreglu samstarf, sem hefur ekki verið raunin því ekki hefur verið auðvelt að finna út hverjir þeir eru, væri ekki endilega hægt að sjá hverjir hafa skrifað á síðuna. Þá segist Einar ekki vita til þess að fleiri síður en þessi séu virkar í dag. Hann segir sömuleiðis að stórt hlutfall mynda sem hafi verið deilt á síðunni hafi verið lengi í dreifingu á netinu og séu gamlar. Þó eru þær ekki allar gamlar og sá blaðamaður að hægt var að finna myndir á síðunni af stelpum sem nú eru á fermingaraldri. „Ég held að við náum loksins að stöðva svona birtingar þegar við náum að stoppa að svona myndir séu yfirhöfuð settar á internetið, um leið og myndin birtist á netinu er hún komin í dreifingu,“ segir Einar og bætir við: „En við erum samt að reyna að stöðva þetta. Það er stöðugt verið að endurskoða hvernig við getum barist gegn glæpum á netinu.“
Mest lesið Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Innlent Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni Innlent Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Innlent „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Innlent Allir um borð í rútunni Íslendingar Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn enn á sjúkrahúsi í Bangkok Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Öruggast að sjóða neysluvatn á Flateyri Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Rútuslys í Rangárþingi og óvissa um brottflutning palestínsks drengs Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun Áfengissala, forsetakosningar og neytendamál Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Tók myndir af fólki á skemmtistað í leyfisleysi Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni „Þessi iðnaður er með meira eða minna allt niður um sig“ Auglýst eftir ungum og efnilegum hökkurum Allir um borð í rútunni Íslendingar Óttast eyðileggingu íslenskrar brimbrettamenningar Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Lögreglan náði lausum grís Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Afmælisstemming hjá Eldstó á Hvolsvelli Líst illa á áfengissölu Hagkaups: „Ég tel bara að það þurfi að fara að lögum“ Þrjátíu og fimm kílómetrar í kjörstað Enginn einn frambjóðandi augljós keppinautur Katrínar „Þetta er bara strangheiðarleg jarðskjálftahrina“ Segir fyrirhugaða áfengissölu Hagkaups lögbrot og jarðskjálftahrina í Hengli Bjarkey kemur starfsfólki matvælaráðuneytisins til varnar Málþing um stöðluð greiningar- og meðferðarferli Spá goslokum á Sundhnúksgígaröð í lok júlí Sagður hafa slegið eiginkonu sína ítrekað með steikarpönnu Sjá meira