Þriggja ára fangelsi fyrir grófar líkamsárásir Aðalsteinn Kjartansson skrifar 25. mars 2015 16:22 Maðurinn kom fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þegar málið var þar til umfjöllunar. Vísir/GVA
Tvítugur karlmaður, Þorlákur Ari Ágústsson, var í dag sakfelldur fyrir fjórar líkamsárásir og brot gegn valdstjórninni. Maðurinn á langan sakaferil að baki og var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi. Sérstaklega var litið til þess að hann rauf skilorð með brotum sínum en 16 mánuðir af þriggja ára dómnum er vegna fyrri dóms sem var skilorðsbundinn. Þorlákur viðurkenndi sök í tveimur árásum af fjórum en hann var sakfelldur fyrir þær allar. Dómur í málunum var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Meðal þess sem Þorlákur var ákærður fyrir var slá mann með kúbeini í höfuðið í Öskjuhlíð. Dómurinn taldi ekki sannað að hann hefði notað kúbein og var hann því sýknaður af því en sakfelldur fyrir að hafa hrint eða fleygt manninum út úr bifreið við Perluna. Sjálfur neitaði hann sök. „Læknisskoðun á brotaþola staðfestir ekki að áhald eins og kúbein hafi valdið þeim áverkum er brotaþoli greindist með og verður það þar af leiðandi ekki talið sannað,“ segir í dómnum. Þorlákur neitaði einnig að hafa slegið konu ítrekað í höfuðið með glerflösku fyrir utan skemmtistaðinn Park. Fjölmörg vitni voru leiddi fyrir dóminn sem bar öllum saman um að hann hafi slegið konuna ítrekað með glerflösku í höfuðið, þar sem hún lá í jörðinni, og á sama tíma veitt henni hnéspörk í læri. Sérstaklega var horft til þess við ákvörðun refsingar að Þorlákur hefði fimm sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Til frádráttar refsingu kemur óslitið gæsluvarðhald hans en hann hefur setið í varðhaldið frá 8. október á síðasta ári.
Tengdar fréttir Grófar líkamsárásir: Tvítugur síbrotamaður með kúbein og grjót að vopni Hæstiréttur hefur fallist á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að tvítugur karlmaður skuli sæta gæsluvarðhaldi til 16. mars. 23. febrúar 2015 16:33 „Hann liggur ofan á mér og er að hamra á mér“ Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn rúmlega tvítugum karlmanni sem ákærður er fyrir fjórar líkamsárásir fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 9. mars 2015 16:47 Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Sjá meira
Grófar líkamsárásir: Tvítugur síbrotamaður með kúbein og grjót að vopni Hæstiréttur hefur fallist á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að tvítugur karlmaður skuli sæta gæsluvarðhaldi til 16. mars. 23. febrúar 2015 16:33
„Hann liggur ofan á mér og er að hamra á mér“ Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn rúmlega tvítugum karlmanni sem ákærður er fyrir fjórar líkamsárásir fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 9. mars 2015 16:47