Lífið

Nýtt lífrænt nasl fyrir krílin

Sonur Guðrúnar, Dagur Freyr, er ánægður með naslið frá Ella's Kitchen.
Sonur Guðrúnar, Dagur Freyr, er ánægður með naslið frá Ella's Kitchen. Stefán
Ella's Kitchen hefur nú bætt bragðgóðu barnanasli í lífrænu flóruna sína. „Við foreldrar vitum nefnilega að bragðgott og skemmtilegt nasl getur gert kraftaverk þegar halda þarf litlu krílunum uppteknum,“ segir Guðrún Húnfjörð, vörumerkjastjóri hjá Nathan & Olsen.

„Naslið er sniðugt fyrir lítil kríli sem eru að læra að halda sjálf á mat og narta því það er létt og fellur fullkomlega að litlum lófum og bráðnar auðveldlega í munni.“

Naslið kemur í litlum pokum sem frábært er að hafa í töskunni til að grípa í hvar og hvenær sem er. Hver naslpoki inniheldur hæfilegan skammt fyrir eitt kríli og hentar börnum frá ýmist sjö eða tólf mánaða aldri.



Gómsætt nasl Skemmtileg lögun fyrir litla putta til að æfa sig og frábært bragð fyrir litla mallakúta.
„Naslið inniheldur engan viðbættan sykur, salt, litarefni eða rotvarnarefni, og eins og allar aðrar Ella's Kitchen-vörur þá er naslið að sjálfsögðu hundrað prósent lífrænt. Það er einfaldlega búið til úr nokkrum korntegundum ásamt þurrkuðum ávöxtum og grænmeti,“ útskýrir Guðrún. 

Hún segir vörumerkið Ella's Kitchen vera vel þekkt hér á landi fyrir bragðgóðar og bráðhollar skvísur fyrir börn frá fjögurra mánaða aldri. „Vörumerkið á rætur sínar að rekja til pabba sem vildi að Ella dóttir sín fengi eins næringarríkan mat og hugsast gæti og vildi ala hana upp við að hollur matur getur líka verið skemmtilegur og bragðgóður. Í dag er Ella orðin táningur og Ella's Kitchen-barnamatur orðinn þekktur um allan heim fyrir bragð og gæði.“ 

Allar vörurnar eru hannaðar með það í huga að örva öll skilningarvit barna með bragði, áferð og litum. Ella's Kitchen leggur auk þess áherslu á að vera umhverfisvænt og gefa til baka til samfélagsins. Hægt er að lesa allt um það á www.ellaskitchen.co.uk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.