Hallgrímur og Eggert Skúla komnir í hár saman Jakob Bjarnar skrifar 2. júlí 2015 10:44 Engir sérstakir klærleikar eru á milli rithöfundarins og ritstjórans, sem bregður fyrir sig íróníu vegna harðskeyttrar greinar þess fyrrnefnda.
Eggert Skúlason, ritstjóri DV, bregður fyrir sig háðinu á Facebooksíðu sinni þar sem hann vænir Hallgrím Helgason rithöfund um að vera heiftúðugur og reiður. Hann skorar á vini sína að læka orð sín, þá þeir sem vilja hjálpa til við að koma rithöfundinum í sumarskap. „Hjálpum Hallgrími. Sumarið er loksins komið og við gleðjumst öll yfir því. Einn og einn á þó erfitt með að brjótast út úr reiðinni og heiftinni. Hallgrímur Helgason rithöfundur okkar Íslendinga er því miður staddur þar. Ég vil biðja ykkur öll um hjálpa honum að komast í sumarskap og skilja eftir vetrarþungan,“ skrifar Eggert. Og birtir fyrir neðan brot úr grein sem Hallgrímur ... „skrifaði um mig á einhverjum vefmiðli í dag.“ „Faglegi ritstjórinn góði er látinn fara og ráðinn inn Eggert nokkur Skúlason, ríkisstjórnarflokkshestur af lummulegasta tagi, einn uppþembdur ignoramus af íslenska skólanum, sem þegar í stað verður nægilega mikill brandari á ritstjórastóli til að enginn blaðamaður með sjálfsvirðingu getur setið eftir. Hægri rasskinn forsætisráðherrans er sest í ritstjórnarstól blaðsins...“ „Hjálpum Hallgrími að njóta sumarsins. Hvert like við þessa færslu er ígildi hlýrra strauma til reiða rithöfundarins. Hallgrímur brostu með okkur,“ bætir svo Eggert við í lokin. Vefmiðillinn sem Eggert getur ekki fengið sig til að nefna er Stundin, og grein Hallgríms, sem Eggerti sárnar svo mjög er hér og heitir „Morðið á DV“. Það stefnir í talsvert fjör á Facebookvegg Eggerts og þegar hafa ýmsir lagt orð í belg, svo sem Össur Skarphéðinsson alþingismaður, sem sjaldan lætur gott partí fram hjá sér fara. Hann svarar Sigurði Boga Sævarssyni, blaðamanni Moggans, sem talar um að svona komment og svona afferur kalli hann gjarnan Samkvæmisleiki Samfylkingarfólks. „Mér finnst sniðugt, Sigurður Bogi Sævarsson, hjá Eggerti að fara í svona sumarleik en ég hef aldrei talið hann endilega með Samfó. Kanski er DV bara Samfó-blað?“Hjálpum Hallgrími Sumarið er loksins komið og við gleðjumst öll yfir því. Einn og einn á þó erfitt með að brjótast út ...Posted by Eggert Skúlason on 2. júlí 2015
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Erlent Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Erlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Innlent Fleiri fréttir Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Sjá meira