Þjóðaratkvæðagreiðslan skrípaleikur 21. mars 2015 10:27 Stuart Gill, sendiherra Bretlands á Íslandi „
Ekkert ríki, sama hversu voldugt, getur leyft sér að hafa alþjóðalög að engu og komast hjá því að taka afleiðingunum.“ Þetta segir Stuart Gill, sendiherra Bretlands á Íslandi, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Þar fjallar Gill um innlimun Krímskaga í Rússland og þá auknu öryggishættu sem stafar af auknum umsvifum Rússa í Evrópu. „Hin svokallaða þjóðaratkvæðagreiðsla á Krím, sem var efnt til í flýti á tveimur vikum, var skrípaleikur. Engir óháðir, alþjóðlegir eftirlitsmenn fylgdust með framkvæmdinni. Þess í stað sáu rússneskir hermenn – „litlu grænu mennirnir“ eins og heimamenn nefndu þá – um að hrinda vilja Vladimírs Pútín í framkvæmd,“ ritar Gill. Sendiherra segir augljóst að rússneskumælandi íbúar á Krím hafi aldrei verið í neinni hættu né annars staðar í Úkraínu. Pútín hefur réttlætt stefnu Rússa með vísan til öryggis rússneskumælandi einstaklinga á svæðinu. Gill segir alþjóðasamfélagið ekki mega sætta sig við innlimun Krím í Rússland. Þetta hafi verið ólögleg aðgerð. Krím sé áfram hernumið land og þeir íbúar sem minnst mega sín líði fyrir gerræðisstefnu Rússa. „Það er til leið út úr þessu. Rússar geta enn kallað herlið sitt til baka frá Krím og Austur-Úkraínu, virt alþjóðlegar skuldbindingar sínar samkvæmt Minsk-samningunum og leyft úkraínsku þjóðinni að ákveða sjálf framtíð sína,“ ritar Gill og lýkur síðan grein sinni á þessum orðum: „En uns þetta gerist munum við ekki leiða hjá okkur það sem gerðist á Krím. Afstaða okkar er skýr: Innlimun Krím í Rússland er ekki hægt að samþykkja og við munum áfram standa vörð um gildi okkar með þvingunaraðgerðum sem refsa þeim sem ábyrgir eru fyrir að slíta Krím frá Úkraínu.“
Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Fleiri fréttir Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Sjá meira