Landspítalinn hlaut Kuðunginn á Degi umhverfisins Atli Ísleifsson skrifar 22. apríl 2015 16:08 Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landspítala, tók við Kuðungnum úr hendi ráðherra. Mynd/Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, afhenti í dag Landspítalanum Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu ráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í 9. bekk í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ útnefndir Varðliðar umhverfisins. Landspítali hlýtur Kuðunginn fyrir metnaðarfulla umhverfisstefnu og markvisst umhverfisstarf undanfarin ár. „Er árangur starfsins skýr og mælanlegur og sýnir að það hefur leitt til ávinnings fyrir umhverfi, öryggi, heilsu og efnahag. Hefur sérstök áhersla verið lögð á að auka flokkun, draga úr sóun, auka vistvæn innkaup, hvetja til vistvænna ferðamáta, hafa skýrt verklag fyrir hættulegan úrgang og að auka miðlun upplýsinga um umhverfismál. Meðal annars má nefna að vegna aðgerða sem lúta að sorpflokkun fóru 130 tonnum meira á ári frá Landspítala til endurvinnslu árið 2014 en 2012, eða 370 kg meira daglega. Spítalinn hefur nýtt innkaupamátt sinn til að stuðla að auknu framboði á umhverfisvænum vörum og þjónustu á markaði með því að setja umhverfisskilyrði í útboðum sínum. Eftir að Landspítali hóf að bjóða samgöngusamninga fjölgaði þeim starfsmönnum sem ferðast með vistvænum hætti og má ætla að bílum hafi fækkað um 160 á götum borgarinnar á hverjum virkum degi og útblástur koltvíoxíðs minnkað um 120 tonn á ársgrundvelli. Á síðasta ári fór fram undirbúningsvinna vegna Svansvottunar eldhúss og matsala Landspítala og afhending Svansvottunarinnar fór fram í mars sl. Eldhúsið og matsalirnir framleiða og selja 4.500 máltíðir á dag en með markvissum aðgerðum hefur matarsóun minnkað um 40% síðan 2011. Það þýðir að 20 tonnum minna er hent af mat á Landspítala á ári hverju. Nýlega voru tekin í notkun margnota matarbox í matsölum, í stað frauðplastboxa sem áður voru notuð. Þessi aðgerð verður til þess að 123.000 færri frauðplastbox eru nú notuð á ári hverju en væri þessum fjölda boxa staflað upp í einfalda röð, yrði staflinn jafnhár og 150 Hallgrímskirkjuturnar. Er það mat dómnefndar að Landspítali sé fyrirmynd í öflugu umhverfisstarfi. Sá mikli árangur sem náðst hafi með markvissum aðgerðum sé öðrum stofnunum og fyrirtækjum hvatning í því að gera betur á þessu sviði. Jákvæð áhrif Landspítala á umhverfið felist þannig ekki síst í því að hann hefur miðlað óspart af þekkingu sinni og reynslu. Verðlaunagripurinn, Kuðungurinn, sem Landspítali hlaut, er að þessu sinni eftir Guðrúnu Indriðadóttur leirlistamann, en svo skemmtilega vill til að hún starfar einnig sem lyfjafræðingur á Landspítala. Þá öðlast stofnunin rétt til að nýta merki verðlaunanna í kynningu á starfsemi sinni,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.Nemendur í 9. bekk í Lágafellsskóla.Mynd/Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðVarðliðar umhverfisins Nemendur í 9. bekk í Lágafellsskóla hlutu svo útnefninguna Varðliðar umhverfisins fyrir verkefni sem unnin voru sem hluti af umhverfisþema síðastliðið haust. „Verkefnin voru margþætt; til að byrja með tóku nemendurnir fyrir ákveðin umhverfismál og kynntu fyrir samnemendum sínum í formi t.d. myndbanda, fréttaþátta, heimildarmynda eða rapplags. Í kjölfarið þurftu nemendur að taka sig á í tíu atriðum er varða umhverfið í sinni hversdagslegu hegðun á heimili sínu, allt frá því að nota færri handklæði í hverri viku og að eiga samskipti við vini og ættingja í eigin persónu, án milligöngu tölvu, síma eða annarra samskiptatækja – og til þess að gera ítarlega áætlun í samráði við foreldra sína um það hvernig heimilið allt geti bætt sig í sjálfbærum lífsstíl. Loks boðuðu nemendur bæjarstjóra Mosfellsbæjar á sinn fund og afhentu honum áskorun með sjö tillögum um úrbætur í umhverfismálum bæjarins. Áskorun nemendanna var í kjölfarið tekin fyrir hjá umhverfisnefnd bæjarins og skiluðu hugmyndir þeirra sér þaðan í vinnu bæjarins við Staðardagskrá 21, sem lýtur að stefnumótun sveitarfélaga í sjálfbærnimálum. Í rökstuðningi dómnefndar segir að verkefnið hafi tekið á umhverfismálum í víðum skilningi. „Verkefnið hafði ekki eingöngu jákvæð áhrif innan skólans heldur einnig út fyrir skólann, í fyrsta lagi þar sem heimili nemenda voru virkjuð og í öðru lagi með beinum hætti í sjálfbærnivinnu bæjarfélagsins.“ Viðurkenningarnar voru afhentar á hátíðarathöfn í Nauthól í dag, sem haldin var í tengslum við Dag umhverfisins sem er 25. apríl næstkomandi. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar viðurkenningarhöfum innilega til hamingju.“
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Sjá meira