Bryndís Björgvinsdóttir fær barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs Atli Ísleifsson skrifar 22. apríl 2015 16:31 Bryndís Björgvinsdóttir. Mynd/Reykjavíkurborg
Bryndís Björgvinsdóttir tók í dag við barnabókaverðlaunum skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur, en þau voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða. Verðlaunin fær hún fyrir bókina Hafnfirðingabrandarann sem Vaka Helgafell gaf út. Marta Hlín Magnadóttir og Birgitta Elín Hassel fengu verðlaunin fyrir þýðingu sína á Eleanor og Park sem gefin var út af Bókabeitunni. Barnabókaverðlaunin voru afhent í 43. sinn í dag. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs, fluttu stutt ávörp við athöfnina í Höfða, grunnskólanemendur úr Austurbæjarskóla sungu og sigurvegarar úr Stóru upplestrarkeppninni lásu upp úr verðlaunabókunum. Í umsögn valnefndar um verðlaunabókina Hafnfirðingabrandarann segir meðal annars: „Hafnfirðingabrandarinn er marglaga skáldsaga þar sem fjallað er um sígild stef í lífi unglinga eins og fyrstu ástina og ástarsorgina, félagslíf og samskiptamynstur sem aldrei er eins flókið og á unglingsárum, ofsakvíða, ofsakæti og allt þar á milli. Sagan er umfram allt skrifuð af leiftrandi stílgáfu, umvefjandi hlýju og heilnæmum húmor sem fær lesendur á öllum aldri til að njóta lestrarins og hreinlega tæta bókina í sig.“Í umsögn um þýðingu unglingabókarinnar Eleanor og Park segir meðal annars: „Eleanor og Park hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga erlendis og dýrmætt þegar slíkar bækur rata inn í íslenskt málsamfélag og verða hluti af því. Það er vandaverk að skrifa bók í nútímanum fyrir nútímaunglinga á trúverðugu orðfæri unglinga fyrir tuttugu árum á þann hátt að textinn virki hvorki framandi né klisjukenndur. Þegar bætist svo í ofanálag að þýða sama texta yfir á annað tungumál verður málið enn snúnara. Þeim Mörtu Hlín Magnadóttur og Birgittu Elínu Hassell tekst einstaklega vel að ná þessu takmarki án þess að það sé á kostnað læsileika og flæðis textans.“ Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs þjóni þeim tilgangi að vekja athygli á gildi góðra bókmennta í uppeldisstarfi og á metnaðarfullri útgáfu barnabóka. Valnefnd var að þessu sinni skipuð Brynhildi Björnsdóttur formanni, Jónu Björgu Sætran og Gunnari Birni Melsted.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Sjá meira