Greinir á um ágæti tilboðs SA Óli Kristján Ármannsson / Heimir Már Pétursson skrifar 6. maí 2015 07:00 Björn Snæbjörnsson er formaður Starfsgreinasambandsins (SGS).
Tilboð Samtaka atvinnulífsins (SA) í yfirstandandi kjaraviðræðum felur í sér 23,5 prósenta hækkun dagvinnulauna á þriggja ára samningstíma, að því er samtökin áréttuðu í tilkynningu í gær. „Innifalið í þeirri hækkun er átta prósenta sérstök hækkun dagvinnulauna, samhliða auknum sveigjanleika vinnutíma og lækkun yfirvinnuálags,“ segir í tilkynningunni. „Samkvæmt tilboði SA hækkaði lægsti taxti aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins (SGS) um 47 þúsund krónur á mánuði á þremur árum. Meðaldagvinnulaun félagsmanna aðildarfélaga SGS hækkuðu úr 260 þúsund krónum á mánuði í 320 þúsund krónur eða um 60 þúsund krónur og meðaldagvinnulaun fiskvinnslufólks úr 290 þúsund krónum á mánuði í 360 þúsund eða um 70 þúsund krónur.“ Þá hafi SA einnig boðið sérstaka hækkun lágmarkstekjutryggingar fyrir fulla dagvinnu sem næði 280 þúsund krónum á mánuði í lok samningstímans. Í samtali við fréttastofu sagði Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, að hugmyndir SA feli í sér að lægsti kauptaxti hækkaði um 28 þúsund krónur á næstu þremur árum. „Að öðru leyti áttu menn að fá einhver átta prósent með því að lengja dagvinnubilið frá sex á morgnana til sjö á kvöldin og yfirvinnuálagið færi úr 80 prósentum (á dagvinnulaunin) í 50 prósent,“ sagði hann og kvað tilboðið rýrt. „Við værum kannski tilbúin að skoða hlutina ef þetta væri til eins árs.“Sigurður Bessason formaður Eflingar og talsmaður Flóabandalagsins.Sigurður Bessason, formaður Eflingar og talsmaður Flóabandalagsins, tók í svipaðan streng. Raunin væri að félögin væru sjálf að leggja til launahækkunina með breytingum á yfirvinnutíma og vaktavinnuálagi. „Þannig að ég gat ekki og hef ekki séð það sem lausn í þeirri deilu sem hér er undir,“ sagði hann.
Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Sjá meira