Læknar fá að minnsta kosti 20% launahækkun Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 17. janúar 2015 18:30 Þorbjörn Jónsson er formaður Læknafélags Íslands. Vísir/GVA
Læknar fá að minnsta kosti tuttugu prósent launahækkun með samþykkt nýs kjarasamings. Yfirgnæfandi meirihluti lækna samþykkti samninginn í atkvæðagreiðslu sem lauk á miðnætti. Þá felur hann í sér frekari launahækkanir fyrir hluta lækna. Bæði Læknafélag Íslands og Skurðlæknafélagið undirrituðu nýja kjarasamninga fyrir rúmri viku. Atkvæðagreiðslum um samingana lauk svo á miðnætti og voru báðir samþykktir. Samningur Læknafélagsins og ríkisins var samþykktur með ríflega níutíu prósent atkvæða. Hann felur í sér töluverðar launahækkanir fyrir lækna. „Þeir sem eru að fá minnst fá kannski um það bil tuttugu prósenta hækkun á sínum launum á samningstímanum en hækkunin er mjög misjöfn,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands. Hann segir aukið tillit tekið til menntunar og ábyrgðar og þá hafi það einnig áhrif á launin hversu oft menn taki vaktir. „Þannig að læknar koma mjög mismunandi prósentulega út úr þessu,“ segir Þorbjörn.Sjá einnig: Launafólk getur ekki búist við jafn miklum launahækkunum og læknar Samingurinn er til þriggja ára eða frá því síðasta sumar til vorsins 2017. Í honum er meðal annars gert ráð fyrir launapottum sem stjórnendur hverrar heilbrigðisstofnunar fyrir sig sjá um að deila út og því fá sumir læknar nokkuð meira en tuttugu prósenta launahækkun. „Við vonum það auðvitað að þessi samningur verði til þess að draga lækna heim frá útlöndum. Það verður auðvitað tíminn að leiða í ljós hvort að samingurinn dugar til þess,“ segir Þorbjörn. Hann segist ekki geta svarað því hvort að þeir læknar sem sögðu upp störfum vegna kjaradeilu þeirra og ríksins dragi uppsagnir sínar til baka. „Auðvitað vona ég það að sem flestir geri það.“
Tengdar fréttir Launafólk getur ekki búist við jafn miklum launahækkunum og læknar Þetta segir forsætisráðherra en hann undirritaði yfirlýsingu í dag um að ráðast í stórfellt átak í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Íslandi. 8. janúar 2015 18:30 Læknasamningarnir gerðir við sérstakar aðstæður Viljayfirlýsing Læknafélagsins, Skurðlæknafélagsins og ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu heilbrigðiskerfisins var undirrituð í gær. Auka á fjármagn til heilbrigðiskerfisins og gera það samkeppnishæft. 9. janúar 2015 07:00 Læknar samþykktu nýjan kjarasamning Læknar hafa samþykkt nýjan kjarasamning við ríkið með ríflega 90% atkvæða. Nýr kjarasamingur var undirritaður á milli Læknafélags Íslands og ríkisins þann 7. janúar og lauk atvkæðagreiðslu um samninginn á miðnætti. 17. janúar 2015 12:35 Mesta ógn á vinnumarkaði um áratugaskeið Framkvæmdastjóri SA segir stöðuna á vinnumarkaði grafalvarlega og að 30 % launahækkun yfir línuna væri ávísun á kollsteypu hagkerfisins með gengisfellingum og óðaverðbólgu. 14. janúar 2015 11:53 Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira
Launafólk getur ekki búist við jafn miklum launahækkunum og læknar Þetta segir forsætisráðherra en hann undirritaði yfirlýsingu í dag um að ráðast í stórfellt átak í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Íslandi. 8. janúar 2015 18:30
Læknasamningarnir gerðir við sérstakar aðstæður Viljayfirlýsing Læknafélagsins, Skurðlæknafélagsins og ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu heilbrigðiskerfisins var undirrituð í gær. Auka á fjármagn til heilbrigðiskerfisins og gera það samkeppnishæft. 9. janúar 2015 07:00
Læknar samþykktu nýjan kjarasamning Læknar hafa samþykkt nýjan kjarasamning við ríkið með ríflega 90% atkvæða. Nýr kjarasamingur var undirritaður á milli Læknafélags Íslands og ríkisins þann 7. janúar og lauk atvkæðagreiðslu um samninginn á miðnætti. 17. janúar 2015 12:35
Mesta ógn á vinnumarkaði um áratugaskeið Framkvæmdastjóri SA segir stöðuna á vinnumarkaði grafalvarlega og að 30 % launahækkun yfir línuna væri ávísun á kollsteypu hagkerfisins með gengisfellingum og óðaverðbólgu. 14. janúar 2015 11:53