Launafólk getur ekki búist við jafn miklum launahækkunum og læknar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 8. janúar 2015 18:30
Launafólk getur ekki búist við jafn ríkulegum launahækkunum og læknar í komandi kjarasamningum. Þetta segir forsætisráðherra en hann undirritaði yfirlýsingu í dag um að ráðast í stórfellt átak í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Undirritunin er í framhaldi af gerð nýrra kjarasamninga lækna og ríkisins. „ Þessi yfirlýsing er staðfesting á sameiginlegum vilja ríkisstjórnarinnar og lækna til að ráðast í stórfellt átak í uppbyggingu heilbrigðisþjónstu á Íslandi. Viðurkenning á því að sparnaður undanfarinna ára hafi haft verulega áhrif á þá þjónustu sem að er veitt hér en jafnframt staðfesting á möguleika Íslands á því að verða aftur land sem að býður heilbrigðisþjónustu í fremstu röð,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Í yfirlýsingunni sem var undirrituð er meðal annars komið inn á bygginu nýs Landspítala og vonast forsætisráðherra til að það geti orðið fyrr en menn áttu von á þó engar tímasetningar liggi fyrir. Samkvæmt heimildum fréttastofu felur kjarasamningurinn við Læknafélagið sem var undirritaður í gær í sér að læknar fá strax við undirritun samningsins nokkuð yfir 10 prósent launahækkun. Auk þess sem frekari launahækkanir koma til á samningstímanum sem er þrjú ár. „ Ég vona auðvitað að þetta hafi ekki neikvæð áhrif á komandi kjarasamninga vegna þess að þar eru til staðar tækifæri til þess að bæta verulega kjör alls almennings í landinu. Fólk held ég almennt skildi mikilvægi þess að verja heilbrigðiskerfið og bregðast við því ástandi sem upp var komið,“ segir Sigmundur Davíð. Aðspurður um hvort launafólk geti almennt búist við jafn ríkulegum launahækkunum og læknar fengu í komandi kjarasamningum segir Sigmundur svo ekki vera. „ Eins og fjármálaráðherra hefur margítrekað þá hefur það svo sem legið fyrir alllengi að það væri ekki mögulegt en jafnframt virðist vera víðtæk samstaða eða sátt um að þetta séu alveg sérstakar aðstæður, staðan í heilbrigðiskerfinu og staða lækna, sem hafi þurft að bregðast við á sérstakan hátt,“ Rúmum hálfum sólahring áður en fundurinn var í stjórnarráðinu í dag var nýr kjarasamningur undirritaður í Karphúsinu á milli skurðlækna og ríkisins. Skurðlæknar höfðu þá verið samningslausir í um ár. „ Það þurfa allir að gefa eftir í svona viðræðum og þegar að svona stendur á en við erum sátt við þessa niðurstöðu, “ segir Helgi Kjartan Sigurðsson formaður Skurðlæknafélagsins. Þá segist hann eiga von á að skurðlæknar komi til með að samþykkja nýja kjarasamninginn þegar atkvæðagreiðsla fer fram um hann.
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök „Áratuga afturför“ og frost í greininni Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Sjá meira