Gagnrýnir að ekkert hundaeftirlit sé virkt um helgar: Husky-hundur nágrannans ógnaði tíu ára syni hennar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. júlí 2015 20:59 Kolbrún Ýr Árnadóttir furðar sig á því hvers vegna ekkert hundaeftirlit sé virkt um helgar. vísir
Tíu ára syni Kolbrúnar Ýrar Árnadóttur var illilega brugðið síðastliðið föstudagskvöld þegar hann var að koma heim til sín og Husky-hundur nágrannans ógnaði honum. „Þetta er um tíuleytið og ég heyri að strákurinn minn er að koma heim. Það er stutt á milli lóðanna hjá okkur og ég heyri líka í hundinum, svona árásarurr. Ég stekk þá upp úr sófanum og sé son minn alveg klesstan upp við húsvegginn og hundurinn er kominn að honum. Hann bítur hann ekki en kemur við höndina á syni mínum sem er dauðhræddur,“ segir Kolbrún í samtali við Vísi. Sonur hennar kom svo inn og fór að hágráta. Kolbrún segir hann ekki þora að nota útidyrahurðina núna. „Hundurinn er bundinn en bandið er alltof langt því hann kemst yfir á okkar lóð. Þegar ég kem út er dóttir þeirra að toga hundinn í burtu. Ég fer þarna út og er alveg brjáluð og nágrannar mínir ná ekki að segja neitt. Ég hef ekkert talað við þau síðan og þau hafa ekkert haft samband við mig.“ Kolbrún segist hafa hringt í lögregluna á föstudagskvöldið en hún gat ekkert gert þar sem hundurinn beit ekki strákinn. „Sonur minn upplifir þetta auðvitað sem árás en samkvæmt lögreglunni er það ekki árás nema að hundurinn bíti. Ég er núna bara að velta fyrir mér hvert ég geti leitað vegna hundsins en lögreglan benti mér á Hundaeftirlitið.“ Hundaeftirlit Reykjavíkurborgar er hins vegar lokað um helgar og furðar Kolbrún sig á því. „Ég mun að sjálfsögðu hafa samband við Hundaeftirlitið á morgun en mér finnst að það verði eitthvað eftirlit virkt um helgar þegar svona mál koma upp.“
Tengdar fréttir Hundur beit þriggja ára dreng í andlitið á Dalvík Sauma þurfti þrjú spor í efri vör drengsins sem fór í sundur, auk þess að hundurinn beit stærra stykki úr sömu vör. 19. júlí 2015 15:53 Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira
Hundur beit þriggja ára dreng í andlitið á Dalvík Sauma þurfti þrjú spor í efri vör drengsins sem fór í sundur, auk þess að hundurinn beit stærra stykki úr sömu vör. 19. júlí 2015 15:53