Samþykktu stefnumótandi skjal um fjármögnun þróunar í þróunarríkjum Atli Ísleifsson skrifar 17. júlí 2015 09:34 Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samþykktu á miðvikudaginn niðurstöðuskjal þriðju ráðstefnunnar um fjármögnun þróunar sem lauk í eþíópísku höfuðborginni Addis Ababa í gær. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að niðurstaðan feli í sér alþjóðlegt samkomulag um fjármögnun þróunar sem stuðli að hagvexti og félagslegri þróun með tilliti til umhverfisverndar. „Skjalinu er því ætlað að vera stefnumótandi í fjármögnun þróunar, fjárlagagerð og fjárfestingu í þróunarríkjunum, hvort sem er í ríkisfjármálum þeirra, einkafjárfestingum eða alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Niðurstaðan er víðtæk og tekur m.a. til skatta, fjárfestingaumhverfis, ólöglegra fjármagnsflutninga, alþjóðaviðskipta og samvinnu á sviði tæknimála svo eitthvað sé nefnt. Þá er í skjalinu lögð áhersla á mikilvægi fjárfestinga sem leggi grunninn að sjálfbærni, vinni gegn fátækt og hungri og stuðli að almennri velsæld, sérstaklega þeirra sem minnst mega sín. Utanríkisráðherra segist sáttur við niðurstöðuna enda endurspeglist helstu áherslur Íslands í textanum. Meðal þeirra má nefna mikilvægi þess að fátækustu ríkin njóti stærri hluta þróunarframlaga; áherslu á að tillit sé tekið til kynjajafnréttis við stefnumótun; nauðsyn þess að nýta og greiða aðgang allra að endurnýjanlegri orku; sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda, bæði á landi og sjó; og að takast þurfi á við ósmitbæra sjúkdóma. Samningaviðræðurnar hafa staðið frá ársbyrjun og undir lokin voru það helst skattamál sem ríkin greindi á um. Þróunarríkin börðust fyrir því að uppfæra skattanefnd Sameinuðu þjóðanna en hún er skipuð 25 skattasérfræðingum alls staðar að úr heiminum sem skipaðir eru af aðalframkvæmdastjóra. Mörg vestræn ríki voru mótfallin þessum breytingum þar sem OECD fer með alþjóðleg skattamál aðildarríkja stofnunarinnar en að auki býðst öllum þróunarríkjum að starfa með þeim 127 ríkjum sem nú þegar eru meðlimir Alþjóðlega vettvangsins um gagnsæi og upplýsingaskipti í skattamálum (Global Forum on Transparency and Exchange of Information for Tax Purposes). Svo fór að starfsdagar nefndarinnar verða tvöfaldaðir, auknir fjármunir munu renna til hennar og nefndarmeðlimir munu áfram starfa í eigin umboði, skipaðir af framkvæmdastjóra,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira