Hlekkjar sig við brennandi víkingaskip Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. janúar 2015 14:55 Dean Gunnarsson ætlar að hlekkja sig við brennandi víkingaskip og reyna að sleppa lifandi frá því.
Kanadíski “Escape” listamaðurinn og Vestur-Íslendingurinn Dean Gunnarsson hyggst hlekkja sig við brennandi víkingaskip, reyna að losa sig og synda í land áður en hann verður eldinum að bráð. Dean ætlaði að láta til skarar skríða klukkan 16 í dag en varð að fresta áhættuatriðinu vegna veðurs, þar sem ekki tókst að ná skipinu á flot. Atriðið mun þó fara fram við Sólfarið á Sæbrautinni og eru áhorfendur velkomnir. Aðgangur er ókeypis og eru áhugasamir hvattir til að fylgjast með tímasetningunni á Facebook-síðu viðburðarins. „Það er búið að vera ansi erfitt að finna hentugan tíma fyrir viðburðinn vegna slæmra veðurskilyrða og ég held það megi alveg segja að Dean sé dálítið kvíðinn fyrir þessu. Sjórinn er svo líka ískaldur og hann sagði við mig áðan að hann býst við að þurfa bara að sitja við ofn allan daginn á morgun,“ segir Ásdís Björg Jóhannesdóttir, kynningarfulltrúi Deans, í samtali við Vísi. Viðburðurinn er hluti af sjónvarpsþættinum Escape or die! en í þættinum er fylgst með Dean þar sem hann ferðast um heiminn og reynir að bjarga sér úr lífshættulegum aðstæðum. Hann hefur meðal annars verið grafinn lifandi í París og hent handjárnuðum út úr flugvél í Japan. Þá hefur Dean einnig komið áður til Íslands en þá var hann hlekkjaður ofan í vatni. Hér að neðan má sjá myndbönd úr þætti Deans.
Mest lesið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Sjá meira