Bruninn í Laugalækjarskóla: Ljóst að um íkveikju var að ræða Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. ágúst 2015 23:54 Eldurinn kviknaði í torfþaki skólans. Mynd af heimasíðu Reykjavíkurborgar
Upplýsingaver, tölvuver, bókakostur og fleira verður ekki til reiðu fyrir nemendur Laugalækjarskóla fyrr en um miðjan september sökum brunans seint í gærkvöldi. Kennari við skólann segir ljóst að um íkveikju var að ræða. Skólastjóri segir tjónið hlaupa á milljónum.Vísir greindi frá því snemma í morgun að kviknað hefði í torfþaki skólans um miðnætti í gærkvöldi. Slökkviliði bárust tilkynningar frá öryggisfyrirtæki og vegfaranda. Þegar komið var á vettvang hafði eldurinn brætt fjóra þakglugga úr plasti og komist inn í skólann. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og í kjölfarið var reykræst og gengið frá. Linda Hreiðarsdóttir, kennari við Laugalækjarskóla, greinir íbúum í hverfinu frá því í hópnum Laugarneshverfi á Facebook að tjónið sé gífurlegt. „Ljóst er að um íkveikju er að ræða og er nauðsynlegt að fá allar upplýsingar fram er málið varðar,“ skrifar Linda og kallar eftir upplýsingum um þá sem kunna að hafa vitneskju um ferðir eða umgang í kringum skólann seint í gærkvöldi. Björn M. Björgvinsson, skólastjóri í Laugalækjarskóla, sagði við Mbl.is síðdegis að tjónið hlypi á milljónum. „Sennilega hafa einhverjir unglingar verið að reykja á þakinu, ég get ímyndað mér það,“ sagði Björn.
Tengdar fréttir Eldur kviknaði í Laugalækjarskóla Eldurinn bræddi fjóra þakglugga úr plasti í sundur og komst inn í skólann. 7. ágúst 2015 07:12 Mest lesið Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Innlent Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Fleiri fréttir Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Sjá meira
Eldur kviknaði í Laugalækjarskóla Eldurinn bræddi fjóra þakglugga úr plasti í sundur og komst inn í skólann. 7. ágúst 2015 07:12