Þrjú þúsund í átakinu Menntun núna ingibjörg bára stefánsdóttir skrifar 22. júní 2015 11:00 Nemendur útskrifaðir úr námskeiðum styrktum af vekefninu Menntun núna. mynd/menntun núna
Um þrjú þúsund einstaklingar hafa á einn eða annan hátt notið góðs af tilraunaverkefninu Menntun núna í Breiðholti sem hófst fyrir tæpum tveimur árum en er nú lokið. Árangurinn þykir svo góður að halda á verkefninu áfram þótt það verði minna í sniðum. „Við í Breiðholti ætlum að halda áfram að hittast og vinna saman. Það fækkar í framkvæmdateymi verkefnisins en við ætlum að þróa áfram tækifæri til menntunar,“ segir Óskar Dýrmundur Ólafsson, hverfisstjóri í Breiðholti. Menntun núna var tilraunaverkefni menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, aðila vinnumarkaðarins og fræðslustofnana. Í verkefninu var lögð áhersla á fræðslu í nærsamfélaginu, að efla innflytjendur, sem eru fjölmennir í Breiðholti, með íslenskunámi og samfélagsfræðslu. Svokallaðir brúarsmiðir fengu þjálfun í að aðstoða samlanda sína við að nýta tækifæri sín í nýju landi. „Meðal námskeiðanna var leiðtoganámskeið fyrir konur sem var mjög vel sótt og árangursríkt. Með því var verið að virkja konur sem leiðtoga í sínu nærsamfélagi,“ greinir Ólafur frá. Jafnframt var lögð áhersla á að ná til brotthvarfsnema á svæðinu. „Haft var samband við um 600 manns sem horfið höfðu frá námi og þeim veitt viðtöl við ráðgjafa eða boðin önnur úrræði. Við teljum að 100 manns hafi beinlínis hafið aftur nám eftir íhlutun. Við erum búin að sá fræjum. Fólk fær hvatningu og ráðgjöf. Það veit oft ekki hvaða tækifæri bjóðast til að fara aftur í nám,“ tekur Óskar fram. Auk Breiðholts hefur verkefnið Menntun núna verið í gangi í Norðvesturkjördæmi. Markmiðið þar var að efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám á vinnustað í kjördæminu, auka samstarf atvinnulífs og fræðsluaðila þar um starfstengt nám, fjölga einstaklingum sem ljúka iðnnámi og efla íslenskukunnáttu innflytjenda í kjördæminu. Verkefnið var liður í átaki til þess að hækka menntunarstig í íslensku atvinnulífi. Sömu aðilar og komu að verkefninu í Breiðholti komu að því í Norðvesturkjördæmi.
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Fleiri fréttir Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Sjá meira