Kísilverð hefur lækkað mikið það sem af er ári Sveinn Arnarsson skrifar 19. desember 2015 07:00 Kísilverksmiðja Thorsil verður reist í Helguvík. vísir/ernir
Iðnaður Kísilverð hefur lækkað nokkuð mikið frá því í mars síðastliðnum. Í kynningarriti Stefnis hf. um fjárfestingarmöguleika í kísilveri Thorsil frá því í nóvember er birt verðspá sem sýnir mun hærra verð á kísli en þekkist í dag. Í skýrslunni, sem Fréttablaðið hefur undir höndum og var dreift á fundi með lífeyrissjóðum, er sagt að verðið á kísli sé um 2.600 dollarar á tonnið til Evrópu. Er þetta gert eftir langtímaspá erlends fyrirtækis sem heitir CRU frá því í mars. Framkvæmdastjóri Stefnis segir skýrsluna hafa verið uppfærða með nýrri gögnum. Stefnir hélt kynningu fyrir fjárfesta í nóvember síðastliðnum og virðist sem gamla verðspáin hafi verið lögð fyrir fjárfestana. Þar er verðið mun hærra en markaðsverð kísils í dag. Í skýrslu sama fyrirtækis, CRU, dagsettri 15. desember síðastliðinn, kemur fram að sex vikna meðalverð á kísli nái ekki 2.100 dollurum. „Hlutverk Stefnis í Thorsil-verkefninu hefur verið að leggja mat á fjárfestinguna fyrir hönd okkar stærstu viðskiptavina, sem eru lífeyrissjóðir og tryggingafélög, og undirbúa verkefnið á þann hátt að það sé tækt til ákvörðunartöku hjá þessum aðilum,“ segir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis. Flóki segir að leitað hafi verið til fyrirtækisins CRU til að fá frá þeim langtímaspá fyrir þær afurðir sem Thorsil muni selja. „Við létum fyrst gera slíka spá í mars en létum uppfæra hana núna í október. Allar tölur í módeli hafa verið uppfærðar og líka grafið í kynningunni. Fjárfestar sem hafa fengið kynninguna með gömlu spánni hafa fengið senda nýja spá,“ segir Flóki. Nú vinnur Thorsil að því að fá til sín nýja fjárfesta. Fjármögnunin verður í heildina 295 milljónir dollara. Núverandi hluthafar munu verða með um 15-25 milljónir dollara. Nýir hluthafar koma inn með 65 til 95 milljónir og það sem upp á vantar, um 200 milljónir dollara, verur fengið að láni. Búið er að semja um afhendingaráætlun á 67 MW raforku frá Landsvirkjun og eru 23,5 MW háð byggingu Hvammsvirkjunar. Samningurinn er til átján ára. Einnig hefur samningur verið gerður við HS Orku um 32 MW og verður hægt að fá 12 MW til viðbótar frá HS Orku ef Hvammsvirkjun verður ekki að veruleika. Búið er að gera sölusamninga um ríflega 80 prósent af ársframleiðslu Thorsil og því verður fyrirtækið ekki eins berskjaldað gagnvart tímabundnum lækkunum og áður. „Samkvæmt CRU eru verð eins og þau eru í dag í línu við spána frá því í október og gera þeir ráð fyrir því í spá sinni að verð fari að hækka upp úr miðju næsta ári,“ segir Flóki.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira