Vinna að því að draga úr fordómum í garð innflytjenda sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 19. mars 2015 16:50 Þórunn Lárusdóttir, verkefnisstjóri Vertu næs, við kynninguna í dag. vísir/vilhelm
Nokkuð hefur borið á því undanfarin ár að fólki hér á landi sé mismunað eftir þjóðerni, þá einna helst þegar kemur að atvinnu og húsnæðismálum. Umræða um innflytjendur er oft á tíðum ómálefnaleg en þá er oftast um að ræða þekkingarleysi fremur en hatur. Þetta kom fram í máli Þórunnar Lárusdóttur, verkefnastjóra átaksverkefnisins Vertu næs, við kynningu þess í höfuðstöðvum Rauða krossins í dag. Um er að ræða átak sem hvetur fólk til að líta í eigin barm, skoða hvernig það kemur fram við fólk sem hefur annan bakgrunn, annað litarhaft eða trú en það sjálft og athuga hvort það geti gert betur.Hægt er að sýna málefninu stuðning með því að mynda hjarta og birta það á samskiptamiðlum með kassamerkinu #vertunaes.vísir/vilhelm„Það er mjög mikilvægt fyrir íslenska samfélagið að ræða og gefa eitthvað í. Við erum á þannig stað að við getum gert eitthvað í þessum málum,“ sagði Þórunn á kynningunni í dag. Þórunn lýsti yfir áhyggjum vegna aukinna fordóma í garð útlendinga hér á landi. „Við lögðumst í rannsóknir og ég er búin að kortleggja hvernig staðan er á Íslandi. Samkvæmt þeim rannsóknum sem ég hef skoðað kemur í ljós að fordómar og mismunun eru staðreynd í íslensku samfélagi. Rauði krossinn vill auðvitað gera eitthvað í því,“ sagði hún.Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, sýnir verkefninu stuðning.vísir/vilhelmRauði krossinn ákvað í desember að fjármagna tveggja ára átaksverkefnið Vertu næs. Til stendur að koma upplýsingum til almennings á margvíslegan máta, með aðstoð samfélagsmiðla, fjölmiðla og leikhúsa svo eitthvað sé nefnt. Þá verður málsvarastarf Rauða krossins eflt og boðið verður upp á námskeið sem fyrirtæki eða einstaklingar geta fengið til þess að upplýsa um leiðir til að forðast ómeðvitaða eða meðvitaða mismunun.Opnuð var vefsíða í tilefni verkefnisins en hún er meðal annars til þess fallin að auka umræðu um málefni innflytjenda á Íslandi. Hægt er að sýna málefninu stuðning með því að mynda hjarta og birta það á samskiptamiðlum með kassamerkinu #vertunaes.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira