Sjálfsvíg algengasta dánarorsökin Linda Blöndal skrifar 5. júlí 2015 19:30 Hjálmar Karlsson er verkefnisstjóri hjálparsíma Rauða krossins 1717. Hann segir að fullum trúnaði sé heitið hringi menn inn. Mynd/Stöð 2
Hlaupi í kringum landið til vitundarvakningar um sjálfsvíg ungra karla lauk í dag. Málefnið er brýnt og unnið er að því að gera þá samfélagsvá sem sjálfsvíg ungra karla eru sýnilega með átakinu „Útmeða“. Átaksverkefnið er á vegum Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Sérstakur hlaupahópur átaksins tók síðasta sprettinn í morgun og kom í mark í dag. Tólf manna hlaupahópur lagði af stað 30.júní og hljóp í kringum landið. Vel var tekið á móti hlaupafólkinu við hús Rauða krossins í Reykjavík í hádeginu.Fjórir til sex á ári fyrirfara sér Málefni átaksins er grafalvarlegt. Vakin er athygli á sjálfsvígum ungra karlmanna, en síðustu misseri hafa sjálfsvíg verið algengasta dánarorsök ungra karla hér á landi á aldrinum 18 til 25 ára. „Þetta eru fjórir til sex karlar á hverju ári sem er rosalega há tala og hana þarf að lækka,” sagði Hjálmar Karlsson verkefnisstjóri hjálparsíma Rauða krossins 1717 í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Safnað fyrir forvarnarverkefni Áheitum hefur verið safnað til að búa til forvarnarmyndband sem frumsýnt verður innan tíðar en um fimm milljónir hafa safnast nú þegar frá einstaklingum og fyrirtækjum. Hjálmar segir að eyða þurfi skömminni hjá ungum körlum sem líði illa. „Fólk fer í felur með þetta og þorir ekki að tala um þetta eins og þetta sé eitthvað til að skammast sín fyrir. En ef þú ert með meiðsl í fætinum þá ferðu til læknis. Af hverju ættirðu ekki að leita þér hjálpar fyrir þessu eins og öllu öðru”, segir Hjálmar. „Við heitum fullum trúnaði. Þetta er algjörlega nafnlaus sími þannig að þú veist aldrei hvern þú ert að tala við eða á hvaða aldursbili hann er og þannig viljum við hafa það. Það gerir fólki oft auðveldara að hafa samband”, segir Hjálmar og að sjálfboðaliðarnir hjá hjálparsímanum séu vel þjálfaðir í verkefnið og fái sjálfir aðstoð þurfi þeir að upplifa erfið símtöl. Hlupu til EyjaTveir hlauparanna, Melkorka Árný Kvaran og Friðleifur Friðleifsson, segja að hlaupið hafi verið að sumu leyti óvenjulegt en hlaupahópurinn æfir reglulega saman í Boot Camp og tekur virkan þátt í átakinu að öðru leyti. „Mér reiknast til að við höfum hlaupið um 1370 til 1380 kílómetra með því að hlaupa til Vestmannaeyja og til baka,“ bendir Friðleifur á og Melkorka bætir við að það hafi verið gerlegt með því að fá hlaupabretti um borð í Herjólf. Síðan hafi verið hlaupinn hringur í Eyjum með hópi fólks þar. Hjörleifur útilokar ekki að hópurinn hafi að hluta knúið ferjuna áfram. „Jú, jú, þetta er þeirra þjóðvegur og þeir fengu þarna aukaafl og þetta var æðislega gaman.“ Enn er tekið á móti framlögum í síma 904 1500. Neyðarsími Rauða krossins fyrir karla í neyð er 1717
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira