Nýjustu vagnar Strætó gallagripir? Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. júlí 2015 14:31 Þegar blaðamann bar að garði hafði hætt að gufa úr kælikassanum en rifuna á kassanum má sjá fyrir miðri mynd. vísir/SÓJ
Kælibúnaður í nýjustu vögnum Strætó bs. hefur haft tilhneigingu til að ofhitna með þeim afleiðingum að hann hefur sprungið undan þrýstingi. Þetta gerðist síðast í hádeginu í dag þegar stöðva þurfti vagn á Miklubraut eftir að rifa kom á kælikassa bílsins og rjúka tók úr honum. Farþegar þurftu að yfirgefa vagninn meðan annar var sóttur til að koma þeim leiðar sinnar en að sögn vagnstjórans er þetta ekki fyrsta tilfelli sinnar tegundar í vögnunum – sem eru ekki nema ársgamlir. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir bilanirnar hafa verið einstök og afmörkuð tilfelli. „Við keyptum 40 svona vagna og þetta hefur bara komið upp í síðustu þrem-fjórum vögnum. Þetta er bara eitthvað gæðamál og þessir aðilar eru að kaupa fullt af íhlutum frá mörgum mismunandi framleiðendum. Í þessu tilviki þá virðast nokkrir kassar vera með eitthvað vandamál í síunni,“ segir Jóhannes.Hér má sjá hvernig kælikassinn rofnaði í dag.Vísir/SÓJStrætisvagnarnir eru af gerðinni Crossway LE og voru keyptir af fyrirtækinu Iveco bus á síðasta ári. Jóhannes segir að Strætó bs. muni ekki bera neinn kostnað af viðgerðum eða íhlutakaupum vegna gallans en þessum bilunum fylgi ætíð eitthvað umstang, svo sem þegar sækja þurfi farþega með öðrum vögnum. Hann bætir við að málið sé nú í höndum framleiðanda vagnanna sem skoði nú hvernig vinna skuli bug á ofhitnuninni sem virðist stundum eiga sér stað í kælikössum nýjustu vagnanna. Strætó bs. hafi lagt mikla áherslu á að lausn finnist sem fyrst á málinu og hefur þrýst á framleiðandann í þeim efnum. Jóhannes vísar því á bug að gerð hafi verið mistök við gerð nýjustu strætisvagnanna. „Strætó ræður þó ekki hvaða vagna það kaupir, það verður að bjóða út og kaupa ódýrustu vagnana,“ segir Jóhannes.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira