ESB tillaga stefnir þingstörfum í uppnám Höskuldur Kári Schram skrifar 10. febrúar 2015 18:57
Evrópusinnar undirbúa nú mótmælaaðgerðir vegna boðaðrar tillögu ríkisstjórnarinnar um að slíta aðildarviðræðum við ESB. Formaður þingflokks Bjartrar framtíðar segir að tillagan stefni þingstörfum í uppnám. Ríkisstjórnin hefur boðað nýja tillögu um að slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið og verður tillagan væntanlega lögð fram á næstu vikum. Kannanir sýna að mikill meirihluti landsmanna vill klára viðræðurnar en einungis þriðjungur er hins vegar hlynntur inngöngu. Róbert Marshall, formaður þingflokks Bjartrar framtíðar, segir viðbúið að tillagan muni mæta harðri andstöðu á Alþingi. „Tillagan mun setja allt í uppnám á þinginu. Alveg eins og gerðist fyrir ári. Ég skil ekki afhverju ríkisstjórnin ætlar að gera þetta. Þetta er bara umsóknarferli sem liggur í dvala. Það er engin pressa, hvorki á þeim né á Evrópusambandinu, að gera nokkuð og það er alveg hægt að láta þetta bíða inn á næsta kjörtímabil og kjósa um þetta í næstu kosningum,“ segir Róbert. Jón Steindór Valdimarsson, formaður Já Íslands samtaka Evrópusinna, segir að boðað verði til mótmæla ef ný tillaga lítur dagsins ljós. „Ég geri fastlega ráð fyrir því að við munum bregðast við með kröftugum hætti. En ég er ennþá að reyna að halda í þá von að þessi tillaga komi ekki fram en við verðum að reikna með því og það verður tekið á móti,“ segir Jón Steindór.
Alþingi Mest lesið Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott Innlent Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Innlent Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Fleiri fréttir Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Sjá meira