Kraftaverkafolaldið Unnur Dís sefur í stofunni Jóhann Óli Eiðsson skrifar 2. ágúst 2015 19:23
Kraftaverkafolaldið Unnur Dís er nýjasta viðbótin við fjölskylduna á bænum Hvoli í Ölfusi. Þar sefur það á teppi í stofunni og er gefið að drekka á hálftíma fresti, allan sólarhringinn. Á Hvoli tvö er nóg um að vera þessa dagana. Hjónin Erla og Bergþór eiga tíu mánaða stúlku og tæplega þriggja ára dreng, en lítil hryssa sem fæddist á föstudaginn er nýjasta viðbótin við fjölskylduna. Aflífa þurfti móðurina þegar hún var fullgengin en hún var orðin mjög veik. Kraftaverki líkast er að folaldið hafi komist lífs af.Unnur Dís í stofunni.„Þau koma og aflífa merina og sker hana með snöggum keisaraskurði sem tók aðeins þrjátíu sekúndur,“ segir Erla Björk Tryggvadóttir. „Hún ætlar sér að lifa. Hún er voða ákveðin. Hún er búin að braggast mikið þó hún sé voða veikburða. Við tokum einn dag í einu.“ Erla, maður hennar, systir og vinkonur skiptast á að vaka yfir folaldinu sem þarf að fá mjólk allan sólarhringinn. Mjólkandi hryssur eru ekki á hverju strái og því hafa þau eytt síðustu dögum í að keyra um alla sveit til að safna mjólk. Þegar við hittum þau í morgun höfðu þau fengið mjólk úr yfir tuttugu hryssum og voru að leggja af stað í nýjan leiðangur. „Við fórum um allar á sveitir og fá hjá ótrúlega góðu tengslaneti. Hestamenn hjálpa hver öðrum alltaf. Það er alveg á hreinu.“ Þegar vinafólk Erlu frétti af folaldinu komu þau með merina Lilju Dís að hvoli, en hún missti sitt folald fyrir einum og hálfum mánuði en mjólkar enn. Næstu daga verður unnið í því að kynna þær folaldið en það getur tekið einhvern tíma að leiða þær saman. „Þannig að vonandi mun þetta virka. Við ákváðum að nefna hana í höfuðið á dýralækninum og hrossinu. Því heitir hún Unnur Dís,“ segir Erla og er bjartsýn á framhaldið hjá henni. „Það er svo mikil barátta í henni.“
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Sjá meira