Frjókornin að fara af stað eftir sólríka helgi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 15. júní 2015 14:00 Frjókornaofnæmi getur verið ansi hvimleitt. Vísir/Getty
Unnur Steina Björnsdóttir, ofnæmislæknir, segir fólk ekki byrjað að kvarta mikið undan frjókornaofnæmi. „En miðað við góða veðrið um helgina ætti þetta að vera að fara af stað.“ Hún nefnir birki-, súru- og grasfrjó. Það er því mikilvægt að fólk sem er með einkenni sé byrjað að taka fyrirbyggjandi nefúða og ofnæmislyfin þegar það verður ofnæmisins vart. Samkvæmt Náttúrufræðistofnun Íslands voru engin frjó í loftinu í síðustu viku enda hefur vorið verið kalt og blautt. Einkenni frjókornaofnæmis eru góðkunn þeim sem hafa verið að kljást við það undanfarin sumur. „Kláði í augum og í nefkoki, tárarennsli og glært nefrennsli. Nefstífla, hnerraköst og ofnæmisastmi,“ útskýrir Unnur. Hún segir að þrátt fyrir að það sé ekki algengt þá geti fólk greint hjá sér ofnæmi á fullorðinsaldri. „Þetta er algengara hjá börnum og unglingum en við sjáum alltaf fullorðið fólk sem er að fá frjókornaofnæmi.“ Unnur segir að auk ofnæmislyfja sé hægt að leita annarra leiða sem geti veitt langvarandi vernd gegn frjókornaofnæmi. Hún nefnir bæði sprautumeðferðir og lyf sem sett eru undir tungu. „Ýmislegt nýtt á döfinni hvað varðar þau mál.“ Það er hægt að bregða á ýmis ráð til þess að verjast frjókornunum „Sleppa því að hengja út þvottinn sinn, reyna að vera duglegur að skola af sér frjókornin, vera með stór skýlandi sólgleraugu og sleppa því að nota linsur. Frjókornin geta farið undir linsuna og valdið einkennum.“
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Sjá meira