Innlent

Skortur á úrræðum fyrir börn

Íris Stefánsdóttir segir að þekkingarmiðstöð væri góð fyrir aðstandendur.
Íris Stefánsdóttir segir að þekkingarmiðstöð væri góð fyrir aðstandendur. Fréttablaðið/Vilhelm
„Staðan er yfirleitt þannig að þegar vandamál er stórt þurfa foreldrar að nota alla orku sína í að hlúa að fjölskyldunni og hafa ekki burði til að leita að þeirri þjónustu sem er í boði. Þarna fengi fólk í þessari stöðu hjálp til að þræða kerfið og finna úrræði fyrir börnin sín,“ segir Íris Stefánsdóttir, stjórnarkona í Olnbogabörnum, samtökum aðstandenda unglinga með áhættuhegðun. Hópur þroskaþjálfanema við Háskóla Íslands hefur undanfarið verið að vinna að þróunarverkefni sem snýr að því að stofna ráðgjafar- og þekkingarmiðstöð fyrir börn og ungmenni með tví- og fjölþættan vanda. Íris segir að þekkingarmiðstöð sem þessi myndi vera mjög góð fyrir fjölskyldur þessara barna.

„Þetta er þróunarverkefni hjá þroskaþjálfanemum sem eru að útskrifast í vor. Það byrjaði sem hluti af námskeiði í skólanum en okkur langaði að þróa meðferðarúrræði fyrir fyrir þessi börn,“ segir Anna Sveinsdóttir, einn nemendanna sem standa að verkefninu.

Börn með tví- og fjölþættan vanda hafa bæði einhvers konar greiningu, eins og til dæmis einhverfugreiningu, og eru í neyslu. Anna segir víða pott brotinn í úrræðum fyrir þessi börn og að það vanti heildstæða sýn yfir þau. „Draumurinn er að stofna miðstöð þar sem fólk getur komið og leitað til okkar. Við myndum vera gagnabanki og hafa upplýsingar um hvað er búið að gera og hvað er hægt að gera.

Hver einstaklingur fengi ráðgjafa hjá okkur sem sæi um öll hans mál.“ Anna segir að markmiðið sé að laga úrræðin að einstaklingnum því það sé oft svo að allir séu settir undir sama hatt. Hún ítrekar að sömu úrræði henti ekki öllum. „Eins viljum við vera stuðningur fyrir foreldra og fjölskyldur barnanna. Það er oft svo að börnin fara í meðferð og svo er litið svo á að þau séu tilbúin að fara heim, en fjölskylduaðstæður eru ekkert skoðaðar. Það vantar lengri eftirfylgni.“

Verkefnið er enn þá á hugmyndastiginu en nemendurnir hafa sótt um styrk fyrir því hjá Startup Reykjavík. „Við höfum kynnt verkefnið meðal annars í Götusmiðjunni og hjá Olnbogabörnum og allir hafa tekið vel í þetta. Jóhannes Kr. Kristjánsson fréttamaður hefur meðal annars sýnt þessu mikinn áhuga og kynnt verkefnið fyrir okkur.“

ATH: Í dag (ekki næsta föstudag eins og stóð í upphaflegri útgáfu fréttarinnar) munu Anna og samnemendur hennar kynna verkefnið á nemaþingi útskriftarnema í þroskaþjálfafræðum. Þingið fer fram í fyrirlestrarsalnum Skriðu í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×