Ómögulegt að lifa á 185 þúsund krónum á mánuði Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 11. desember 2015 07:00 Meirihluti fjárlaganefndar leggur til 9,7 prósenta hækkun. Fréttablaðið/GVA
Forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins og Landssambands eldri borgara funduðu með fjárlaganefnd í gær um kjör örorku- og lífeyrisþega og kröfðust þess að afturvirk hækkun bóta yrði tekin upp. Tilefni fundarins var beiðni minni hluta fjárlaganefndar um að halda opinn fund um tillögu minnihlutans um breytingartillögu hans á fjáraukalögum ársins 2015 þess efnis að örorku- og lífeyrisþegar fengju greiddar afturvirkar bætur frá 1. maí 2015 líkt og fleiri stéttir fengu. Tillaga minnihlutans var felld á þingfundi síðastliðinn þriðjudag. Ellen Calmon, formaður ÖryrkjabandalagsinsEllen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins, bendir á að þingmenn og ráðherrar hafi meðal annars fengið afturvirka hækkun og segir það af og frá að öryrkjar geti lifað við núverandi kjör. „Öryrkjar búa ekki við jafnræði þegar kemur að kjörum. Annars vegar hækkuðu laun þjóðkjörinna fulltrúa um 96 þúsund á árinu 2015, laun ráðherra um meira en hundrað þúsund krónur á meðan lífeyrir örorkulífeyrisþega hefur hækkað um fimm þúsund krónur á árinu,“ segir Ellen. „Við bentum á að það er þrennt í okkar kjarabaráttu sem við leggjum áherslu á,“ segir Ellen og nefnir kröfu ÖBÍ um að örorkulífeyrir verði 300 þúsund krónur eða hærri líkt og lágmarkslaun á vinnumarkaði, að lífeyrir verði greiddar afturvirkt líkt og minnihluti fjárlaganefndar hefur lagt til og einnig að svokallaðri krónu á móti krónu skerðingu á sérstakri framfærsluuppbót verði hætt. Fjárlaganefnd hefur lagt til 9,7 prósenta hækkun bóta um áramótin en samtökin tvö telja þá hækkun ófullnægjandi. „Við bentum á að með þessari hækkun sem er verið að boða núna bætist eitthvað örlítið við þannig að örorkulífeyrisþegar fara úr 172 þúsund krónum á mánuði í sirka 182 þúsund krónur á mánuði að lágmarki.“ Nefndarmenn bentu á að um 2,2 milljarðar hafa verið settir inn í kerfið á síðastliðnum árum og hækkun komandi árs til að koma til móts við bótaþega. „Það er alveg sama hvort fólk segi 9,7 prósent eða nefni einhverja milljarða, á mannamáli þýðir þetta bara það að það er ekki hægt að lifa á 185 þúsund krónum á mánuði.“ Ellen vísar í 69. grein almannatryggingalaga sem kveður á um að lífeyrir eigi að halda í við í launaþróun og megi ekki hækka minna en nemur vísitölu neysluverðs. Hún segir að þessu ákvæði sé ekki fylgt. Öryrkjabandalagið hefur efnt til mótmæla fyrir framan Alþingishúsið í dag klukkan tíu fyrir hádegi.
Tengdar fréttir Öryrkjar og eldri borgarar líða margir skort Forystufólk Öryrkjabandalagsins og samtaka eldri borgara ítreka kröfur sínar á fundi með fjárlaganefnd um að lífeyrisgreiðslur hækki í samræmi við laun á vinnumarkaði. 10. desember 2015 19:30 Öryrkjar og aldraðir á fundi fjárlaganefndar: „Við getum auðveldlega útrýmt fátækt í þessu litla samfélagi“ Fulltrúar frá Landssambandi eldri borgara og Öryrkjabandalaginu komu á fund fjárlaganefndar í dag þar sem þeir fóru yfir það hvers vegna þeir telja að hækkanir elli- og örorkulífeyris eigi að vera afturvirkar frá 1. maí síðastliðnum. 10. desember 2015 16:23 Kári hótar ríkisstjórninni 100 þúsund undirskriftum "Söfnunin verður létt verk og löðurmannlegt. Þjóðinni ofbýður,“ segir forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. 10. desember 2015 10:13 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Sjá meira
Öryrkjar og eldri borgarar líða margir skort Forystufólk Öryrkjabandalagsins og samtaka eldri borgara ítreka kröfur sínar á fundi með fjárlaganefnd um að lífeyrisgreiðslur hækki í samræmi við laun á vinnumarkaði. 10. desember 2015 19:30
Öryrkjar og aldraðir á fundi fjárlaganefndar: „Við getum auðveldlega útrýmt fátækt í þessu litla samfélagi“ Fulltrúar frá Landssambandi eldri borgara og Öryrkjabandalaginu komu á fund fjárlaganefndar í dag þar sem þeir fóru yfir það hvers vegna þeir telja að hækkanir elli- og örorkulífeyris eigi að vera afturvirkar frá 1. maí síðastliðnum. 10. desember 2015 16:23
Kári hótar ríkisstjórninni 100 þúsund undirskriftum "Söfnunin verður létt verk og löðurmannlegt. Þjóðinni ofbýður,“ segir forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. 10. desember 2015 10:13