Söfnuðu 2,4 milljónum í góðgerðarstörf: „Klárlega skemmtilegasta skólavikan“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 26. nóvember 2015 11:25 Strákarnir segja hugarfarsbreytingu hafa orðið í kjölfar verkefnisins. vísir/vilhelm
Nemendur í Hagaskóla söfnuðu rúmlega 2,4 milljónum króna á árlegum góðgerðardegi sem fram fór fyrr í mánuðinum. Þetta er í sjöunda sinn sem góðgerðardagurinn Gott mál er haldinn í skólanum, en markmið dagsins er að vekja nemendur til umhugsunar um hvað felst í sjálfboðaliða- og hjálparstarfi. Málefnin völdu nemendurnir sjálfir og að þessu sinni ákváðu þeir að styrkja sýrlenska flóttamenn sem koma til Íslands, og samtökin Útmeða, stuðningshóp sem fyrirbyggir sjálfsvíg ungmenna. Tómas, Benedikt og Magnús, eru afar ánægðir með árangurinn.vísir/vilhelm Góðgerðarvikan að árlegri hverfishátíð „Þetta hefur verið árlegur viðburður í Hagaskóla í sjö ár. Bekkirnir vinna saman til að safna peningum fyrir góðgerðarsamtök, allir finna eitthvað til að gera og hafa peningum. Þetta er virkilega gott til að ná skólanum betur saman,“ segir Tómas Viðar Árnason, einn nemendafulltrúa í Hagaskóla. Hann er nú á sínu síðasta ári í Hagaskóla og segist eiga eftir að sakna þess að fá að taka þátt í góðgerðarvikunni. „Þessi vika er klárlega skemmtilegasta skólavikan. Við höfum verið að toppa okkur hvert ár og ég býst ekki við öðru en að skólinn muni toppa sig að ári liðnu. Þetta er orðið vel þekkt í Vesturbænum – eiginlega bara orðið að hverfishátíð,“ segir hann. Rauði krossinn og Útmeða urðu fyrir valinu í ár.vísir/vilhelm Samnemandi hans og annar nemendafulltrúi, Magnús Magnússon, tekur í sama streng, og segir söfnunina hafa farið fram úr björtustu vonum. „Við áttum reyndar alveg von á að toppa okkur í ár, en aldrei von á að upphæðin yrði svona há,“ segir Magnús.Hugarfarsbreyting í kjölfar verkefnisins Benedikt Jökull Helgason, sem jafnframt er nemendafulltrúi í skólanum, segir þetta frábæra leið til að vekja krakka til umhugsunar. Hugarfar þeirra hafi vissulega breyst í kjölfar góðgerðarstarfsins. „Þetta er voða gaman. Allir vinna saman og skemmta sér vel og ég held þetta veki mikla umhugsun í skólanum, þannig að fólk átti sig betur á um hvað þetta snýst,“ segir Benedikt. Þrátt fyrir að skólaganga þeirra í Hagaskóla sé senn á enda, eru þeir allir sammála um að þeir muni halda áfram að styrkja góð málefni. Mikilvægt sé að fólk taki höndum saman og sýni samstöðu. Um fimm hundruð nemendur koma að góðgerðarvikunni, sem hefur verið árleg frá árinu 2008. Nemendur skólans koma saman og selja meðal annars kökur og kandífloss, og standa fyrir ýmsum viðburðum á borð við happadrætti. Þá er orðin hefð að útbúa heljarinnar draugahús í kjallara skólans sem nýtur jafnan mikilla vinsælda. Í fyrra söfnuðust 2,2 milljónir sem runnu til Krabbameinsdeildar Landspítalans og til barna á Gazasvæðinu, en venjan er að styrkja eitt innlent málefni og eitt erlent. Yfir fimm hundruð nemendur stóðu að söfnuninni.vísir/vilhelm Stöð 2 leit við á góðgerðardeginum 5.nóvember, líkt og sjá má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir Hagskælingar safna fyrir góðum málefnum Flóttamenn frá Sýrlandi og ungmenni munu njóta góðs af góðgerðadegi Hagaskóla. 5. nóvember 2015 20:58 Sjáðu fagnaðarlætin: Hagaskóli sigraði í Skrekk Femínískur boðskapur atriðisins sló í gegn hjá dómnefnd. 16. nóvember 2015 21:45 Samfés óskar Hagaskóla til hamingju en minnir á að klæðaburðarreglurnar eru ekki í gildi "Enda er unglingum vel treystandi til þess að dæma hvaða klæðnaður sé viðeigandi hverju sinni.“ 17. nóvember 2015 15:28 Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Fleiri fréttir Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sjá meira
Hagskælingar safna fyrir góðum málefnum Flóttamenn frá Sýrlandi og ungmenni munu njóta góðs af góðgerðadegi Hagaskóla. 5. nóvember 2015 20:58
Sjáðu fagnaðarlætin: Hagaskóli sigraði í Skrekk Femínískur boðskapur atriðisins sló í gegn hjá dómnefnd. 16. nóvember 2015 21:45
Samfés óskar Hagaskóla til hamingju en minnir á að klæðaburðarreglurnar eru ekki í gildi "Enda er unglingum vel treystandi til þess að dæma hvaða klæðnaður sé viðeigandi hverju sinni.“ 17. nóvember 2015 15:28