Innlent

Betur fór en á horfðist eftir alvarlegan árekstur á Eskifirði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Eskifirði.
Frá Eskifirði. Vísir/Pjetur
Einn þeirra sem fluttur var á fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað í gær eftir alvarlegan árekstur í Krók á Eskifirði í gærmorgun er enn á sjúkrahúsinu. Beita þurfti klippum til að ná fólki úr fólksbílum en enginn mun þó hafa verið í lífshættu. 

Hin tvö sem lögð voru inn á sjúkrahúsið í gær eru farin til síns heima. Þetta staðfestir vakthafandi læknir í samtali við Vísi.

Áreksturinn varð rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun þar sem fólksbíll og pallbíll skullu saman en bílunum var ekið úr gagnstæðri átt. Töluverð hálka var á veginum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×