Gert er ráð fyrir 13 milljarða halla á rekstri borgarsjóðs á árinu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. nóvember 2015 15:04 GVA
Gert er ráð fyrir 13,4 milljarða halla á rekstri borgarsjóðs Reykjavíkur á árinu. Þar vegur gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga sem nemur 14 milljörðum króna þungt. Borgarsjóður var rekinn með þriggja milljarða halla á síðasta ári en hrinda á af stað aðgerðaráætlun til að ná jafnvægi á rekstri borgarsjóðs.Í greinargerð sem fylgir fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar segir að há gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga skýrist einkum af launahækkunum á árinu, lágri verðbólgu og óhagstæðri vaxtaþróun. Launakostnaður vegur um 55% af rekstarkostnaði A-hluta að frátöldum lífeyrisskuldbindinga og því er viðbúið að niðurstöður kjarasamninga hafi áhrif á rekstur Reykjavíkurborgar á næstu árum. Á árinu 2014 var borgarsjóður rekinn með 2,8 milljarða halla og þar hafði aukning launakostnaðar vegna kjarasamninga ársins og endurskoðun á starfsmati mest áhrif.Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.VÍSIR/STEFÁNTelur að vanti upp á fjárframlög frá ríkinu Reykjavíkurborg segir að ein ástæðan fyrir vaxandi rekstrarhalla megi rekja til fjárhagssamskipta þeirra við ríkið. Sveitarfélögin telja að verulega vanti upp á fjármuni frá ríkinu til að tryggja þjónustu við fatlað fólk og þjónustu við eldri borgara á hjúkrunarheimilum. Þá telur Reykjavíkurborg einnig að ríkið hafi rukkað sveitarfélögin um tryggingargjald umfram það sem atvinnustig í landinu kallar á. Á næsta ári er gert ráð fyrir að fjárfest verði fyrir um 10 milljarða króna, halda á áfram uppbyggingu í Úlfarsárdal með byggingu leik- og grunnskóla ásamt menningar og íþróttahús auk þess sem fara á í framkvæmdir vegna byggingu útisundlaugar við Sundhöll Reykjavíkur. Hrinda á af stað aðgerðaáætlun en markmið hennar er að grunnrekstur borgarinnar verði sjálfbær. Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrinum verði snúið við á næsta ári og muni A-hluti borgarinnar sem heldur utan um grunnreksturinn skila 567 milljón króna afgangi. Þá muni samstæðan, A- og B-hluti verða rekin með tæplega 8,1 milljarða króna afgangi.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Fleiri fréttir Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Sjá meira