Aðkoman var skelfileg: Íbúð ungs pars hreinsuð og bílnum stolið líka Jakob Bjarnar skrifar 31. október 2015 14:36 Íbúð Ásu og Guðna var í rúst, allt tekið þar á meðal tölva sem geymir allt sem snýr að háskólanámi Ásu og skírnargjafir ungabarns þeirra. „
Þetta er eins óskemmtilegt og það verður,“ segir Guðni G. Kristjánsson. Innbrotsþjófar gerðu sér lítið fyrir og bókstaflega hreinsuðu íbúð hans og kærustu hans, Ásu Þorsteinsdóttur í nótt. Aðkoman var skelfileg. Allt á rúi og stúi og allt tekið sem var einhvers virði: Sjónvarp, heimabíó og tölvur. Og eins og það sé ekki nóg, bíllinn þeirra var tekin líka: Brúnn Hyundai i30 með skráningarnúmerið YRP-22. Lesendur eru beðnir um að hafa hjá sér augun verði þeir varir við bílinn eða þýfið.Skírnargjafirnar allar teknar Guðni og Ása voru nýbúin að láta skíra dóttur sína og allar skírnargjafirnar höfðu verið teknar. Guðni var staddur fyrir norðan þegar Vísir náði í hann, var við rjúpnaveiðar þegar honum bárust þessi skelfilegu tíðindi. Hann er nú á heimleið. „Mesta tjónið er líklega í tölvunni hennar Ásu sem er 15“ MacBook pro-tölva. Þar er allt fjögurra ára háskólanám hennar. Hún er að klára og er byrjuð á Bs-ritgerðinni sinni í ferðamálafræði í Háskóla Íslands. Þar eru ritgerðir, glósur og allt námið,“ segir Guðni.Íbúðin í rústGuðni og Ása búa í Fossvoginum og svo virðist sem innbrotið hafi verið skipulagt. Þannig var að Ása fór út á lífið með vinkonum sínum, í fyrsta skipti eftir að hún eignaðist barnið sem var í júní, og þegar hún kom heim aftur, um klukkan hálf fimm voru innbrotsþjófarnir búnir að læsa hurðinni að innanverðu með keðju. Ása þurfti að brjótast inn til sín. Lögreglan var kvödd á staðinn og hún segir að fyrst þeir stálu bílnum líka séu meiri líkur á því að innbrotsþjófarnir náist.Barnaföt út um allt „Þetta er alveg ömurlegt. Þeir hafa verið þarna í langan tíma. Það var búið að opna matarílát og barnafötin voru þarna út um allt. Íbúðin er í rúst. Og dýr föt farin. Það má kannski heita heppni að ég var fyrir norðan með mitt dót, tölvu og annað. Það væri farið líka,“ segir Guðni. Guðni og Ása eru bæði á þrítugsaldrinum. Þau fluttu í íbúð sína fyrir þremur mánuðum og segir Guðni að þau eigi eftir að fara nánar í gegnum búslóðina, hvað sé horfið. Það er verkefni sem blasir við þegar Guðni kemur heim úr veiðiferðinni.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira