Innlent

Þór á leið til Þórshafnar með grænlenskan togara

Gissur Sigurðsson skrifar
Heimsiglingin sækist hægt en örugglega.
Heimsiglingin sækist hægt en örugglega. Vísir/GVA
Varðskipið Þór er nú á leið til Þórshafnar með grænlenskan togara í togi, eftir að vélin í honum bilaði þegar hann var staddur rúmlega 200 sjómílur norðaustur af langanesi.

Þegar sýnt var að áhöfninni tækist ekki að gera við bilunina óskaði skipstjórinn eftir aðstoð og var Þór sendur á vettvang.

Heimsiglingin sækist hægt en örugglega og eru skipin væntanleg til Þórshafnar síðdegis.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×