„Það átti að skjóta þessu yfir hópinn en þetta átti að vera brunnið áður en það kom niður“ Birgir Olgeirsson skrifar 23. ágúst 2015 14:28 „
Ég var þarna ekki langt frá og sá þegar þessu var skotið upp,“ segir Tómas Gíslason, sveitarforingi Hjálparsveitar skáta, um flugeldasýninguna sem haldin var undir lok Menningarnætur, afmælishátíðar Reykjavíkurborgar, í gærkvöldi. Vísir sagði frá því í morgun að neyðarblys hefði svifið logandi inn í áhorfendahóp við Arnarhól þegar sýningin stóð sem hæst. Sigríður Soffía Níelsdóttir danshöfundur samdi flugeldasýninguna sem var tvískipt í ár og bar titilinn Stjörnubrim og himinn kristallast. Hluti verksins Stjörnubrim var samvinna við Hjálparsveit skáta sem skaut upp fjölda neyðarblysa í tengslum við sýninguna. „Sólir eru þannig að þær svífa varlega til jarðar og eiga að vera útbrunnar áður en þær koma niður,“ segir Tómas um atvikið en hann segist hafa tekið eftir því að neyðarblysunum var skotið aðeins of mikið á ská. Hann sagði ætlunin hafi verið að skjóta neyðarblysunum yfir áhorfendahópinn en eftir á að hyggja hefði mátt skjóta þeim hærra. „Það átti að skjóta þessu yfir hópinn en þetta átti að vera brunnið áður en það kom niður. En þetta voru engar sprengjur sem fóru þarna yfir. Þær fóru allar út á kæja og sprungu þar.“ Hann bendir á að hundruð og þúsund neyðarblysum sé skotið upp um áramótin en þau séu vanalega ekki logandi þegar þau lenda á jörðu. Annars var Tómas ánægður með hvernig flugeldasýningin tókst til. „Það komu þarna nokkrar dramatískar þagnir sem gaf fólki tíma til að dást að henni.“
Tengdar fréttir Neyðarblys lenti í hópi áhorfenda á Menningarnótt Gerðist þegar flugeldasýningin stóð sem hæst. 23. ágúst 2015 09:46 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira
Neyðarblys lenti í hópi áhorfenda á Menningarnótt Gerðist þegar flugeldasýningin stóð sem hæst. 23. ágúst 2015 09:46