Nýttu ætlaða matstofu eldri borgara undir ræktun Birgir Olgeirsson skrifar 12. ágúst 2015 15:30 Ræktunin fór fram í fjölbýlishúsi í Herjólfsgötu sem er ætlað eldri borgurum. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi ætluðu eldri borgurum í Hafnarfirði í gær. Samkvæmt heimildum Vísis er um að ræða fjölbýlishúsaþyrpingu sem stendur í Herjólfsgötu en ræktunin fór fram í miðjuhúsinu, nánar tiltekið í rými sem átti að verða þjónustukjarni fyrir húsin og innihalda meðal annars matstofu. Þær áætlanir fóru út um þúfur þegar bygging húsanna átti sér stað á síðasta áratug og hófst því rekstur þjónustukjarnans aldrei. Þess í stað var rýmið leigt út. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær aðila á þrítugsaldri í tengslum við kannabisræktunina og telst málið upplýst að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir ræktunina hafa verið fremur stóra miðað við þær sem lögreglan hefur stöðvað undanfarið. Um var að ræða 124 plöntur, misstórar, alveg að tveimur metrum á hæð og niður í græðlinga. „Svo var þarna eitthvað um hálft kíló sem var tilbúið til neyslu,“ segir Margeir sem vildi ekki gefa upp hvar í Hafnarfirði þessi ræktun hefði verið stöðvuð. Lögreglan að störfum í húsinu Gunnar Hólmsteinsson, formaður húsfélagsins, segir lögregluna hafa verið að störfum í húsinu í gær en íbúar hafi ekki fengið að vita hvers vegna. „Okkur var haldið alveg frá þessu,“ segir Gunnar sem segir íbúana ekki hafa orðið vara við grunsamlega hegðun í þessu rými. Vildu að Hafnarfjarðarbær starfrækti mötuneyti fyrir aldraða Húsfélagið lagði fram beiðni til bæjarráðs Hafnarfjarðarbæjar í mars síðastliðnum þar sem var farið þess á leit að Hafnarfjarðarbær yfirtæki þetta rými á 1. hæð í miðjuhúsinu. Þannig yrði veitt sambærileg þjónusta og sveitarfélagið veitir á Hjallabraut og Höfn. Í beiðninni kemur fram að í þessum þremur fjölbýlishúsum séu 49 íbúðir sem eru ætlaðar 60 ára og eldri en í mars síðastliðnum bjuggu þar 69 einstaklingar, fjórir 90 ára og eldri, tuttugu og sjö á milli 80 og 90 ára og þrjátíu og einn á milli 70 og 80 ára. Þar segir að allflestir þeirra einstaklinga sem festu kaup á íbúðunum hjá húsbyggjandanum, Íslenskum aðalverktökum, hefðu verið í þeirri góðu trú að Hafnarfjarðarbær myndi starfrækja þar mötuneyti fyrir aldraða. Annað átti síðar eftir að koma í ljós. Ítrekaði mikilvægi þess að þjónustukjarninn yrði til reiðu Árið 2007 átti húsfélagið fund með þáverandi bæjarstjóra, Lúðvík Geirssyni, um að Hafnarfjarðarbær kæmi að rekstri aðstöðunnar í rýminu. Kemur fram í beiðninni til bæjarráðs að bæjarstjóri hefði tekið vel í þessa málaleitan en taldi þó, að enn væri einingin helst til lítil.Hann sagði þó að eldri borgurum sem þyrfti að sinna myndi fjölga í hverfinu með uppbyggingu á Norðurbakka og á Herjólfsgötu og þá gæti málið verið tekið til endurskoðunar. Ítrekaði hann að mikilvægt væri að þjónustukjarninn á Herjólfsgötu yrði til reiðu en síðar kom í ljós að ÍAV væri eigandi þessa rýmis.Lagði því húsfélagið fram formlega beiðni til bæjarráðs Hafnarfjarðarbæjar að sveitarfélagið tæki rýmið yfir.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Fleiri fréttir Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Sjá meira