Hætt við hækkaðan innritunaraldur í leiksskóla Hafnarfjarðar Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. ágúst 2015 17:42 Úr Hafnarfirði. vísir/gva
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag í umboði bæjarstjórnar tillögur fræðsluráðs frá 1. júní um lækkun innritunaraldurs barna í leikskóla og um hækkun á mótframlagi til foreldra barna hjá dagforeldrum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarstjórn.Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.Stefnt er að því að á kjörtímabilinu verði börn 18 mánaða á því ári sem þau innritast í leikskóla í stað tveggja ára eins og verið hefur. Niðurgreiðslur vegna barna hjá dagforeldri hækka úr 40.000 kr. í 50.000 kr á mánuði og til viðbótar kemur mótframlag við 18 mánaða aldur barns þar til það fær leikskólavist. Einnig var samþykkt að hefja undirbúning að tilraunaverkefni um gjaldfrjálsan leikskóla og verða 1-2 leikskólar fengnir til að taka þátt í því. Reynsla þeirra af verkefninu verður síðan höfð til hliðsjónar þegar ákveðið verður um slíkt skipulag til framtíðar. „Með þessu er verið að taka fyrsta formlega skrefið í átt að lækkun innritunaraldurs barna á leikskóla bæjarins. Einnig er verið að minnka útgjöld barnafjölskyldna og gera þannig sveitarfélagið samanburðarhæfara í þeim efnum við önnur sveitarfélög, eins og meirihlutinn vill leggja áherslu á,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs.Minnihlutinn: Ekki verið að lækka innritunaraldu Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs vilja koma því á framfæri að ekki sé rétt af hálfu meirihlutans að lækkun á innritunaraldur leikskólabarna hafi verið samþykkt. Hið rétta sé að dregin hafi verið til baka fyrri ákvörðun meirihluta Bjartar framtíðar og Sjálfstæðisflokks um að hækka innritunaraldur leikskólabarna en tillaga þess efnis var samþykkt í desember síðastliðnum. Minnihlutinn vill einnig koma á framfæri að á fundinum var jafnframt tekin fyrir tillaga fulltrúa meirihlutans um að hefja innleiðingu tilraunaverkefnis um svokallaðan „sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla“. Töluvert var fjallað um tillöguna fyrst þegar hún var kynnt af hálfu meirihlutans sl. vor en litlar sem engar útskýringar fylgdu henni þá sem gátu skýrt út hvernig framkvæmd hennar ætti að vera háttað. Á fundi bæjarráðs í dag kom fram að ætlunin sé að foreldrar þeirra barna sem hafa börn sín í 6 klukkustundir eða skemur hvern dag greiði engin leikskólagjöld en gjöld annarra foreldra verði óbreytt. Það þýðir að gjöld vegna þeirra barna sem eru 7-8 klukkustundir verði óbreytt frá því sem nú er.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Sjá meira