Innlent

Fengu veggjalús í sumarbústað Kennarasambandsins

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Leikskólastjóri, sem varð fyrir skaða eftir að hafa lent í veggjalús í sumarbústað sem hún leigði í gegnum Kennarasambandið, segir að stéttarfélagið, sem hún hefur verið í í tugi ára, vilji ekki axla ábyrgð í málinu.

Síðustu páska leigði Erla Stefanía Magnúsdóttir sumarbústað á Glaðheimum á Blönduósi ásamt dóttur sinni og tengdasyni. Unga parið fór norður sólarhring á undan henni en varð fljótlega vart við að ekki var allt með felldu í húsinu. Þar var allt morandi í skordýrum sem reyndust vera veggjalýs eða bed bugs. Eftir að hafa kannað málið stuttlega ákváðu þau að fara strax úr bústaðnum þar sem þau skildu allt sitt eftir, föt og innkaupapoka fulla af mat. Þau komu aftur í bæinn á náttfötunum einum saman sem voru svo sett í svartan ruslapoka og þeim hent. Auk þess gátu þau hvorki notað bílinn sem þau voru á né tölvu sem var meðferðis í viku eftir að hafa lent í veggjalúsinni. 

Erla setti sig strax í samband við meindýraeyði og heilbrigðiseftirlit norðurlands. 

„Ég heyrði í Sigurjóni sem hefur með þetta mál að gera hjá heilbrigðiseftirlitinu og hann sagði að hann hefði þurft að loka þessum húsum áður vegna veggjalúsa. Samt voru þau ennþá í útleigu,“ segir hún.

Erla lagði út fyrir meindýraeyði vegna málsins auk þess sem dóttir hennar borgaði háan læknis og lyfjakostnað, þar sem bit voru enn að koma upp tíu dögum síðar. Erla segir svör Kennarasambandsins hafa verið á þá leið að tryggingar næðu ekki yfir slík atvik.

„Það er furðulegt að ef ég lendi í svona óvæntum atvikum að það sé á mína ábyrgð, ekki á ábyrgð Kennarasambandsins og ekki á ábyrgð eiganda. Það þarf að upplýsa alla félagsmenn um þessa hluti, að mínu mati er það mjög mikilvægt. Ég hef velt því fyrir mér hvort þetta sé svipað í VR, BHM og á öðrum stöðum. Hver á að borga ef þú lendir í svona vágesti sem er til staðar í húsinu þegar þú kemur? “

Erla hefur verið í Kennarasambandinu í fjöldamörg ár og meðal annars setið í stjórn orlofssjóðsins. Hún sagði sig úr stjórninni eftir þessa lífsreynslu.

„Ég er bara miður mín. Ég hef alltaf verið mjög stolt af mínu stéttarfélagi og er búin að starfa þar í 24 ár. Ég er miður mín yfir því að hafa þurft að standa í þessu í fimm og hálfan mánuð. Ég óska engum að lenda í þessu og vildi að stéttarfélagið mitt hefði brugðist betur við,“ segir hún. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×