Ákærð fyrir að innheimta lífeyrisgreiðslur konu sem lést árið 2000 Birgir Olgeirsson skrifar 19. ágúst 2015 16:38 Tryggingastofnun ríkisins gerir þá kröfu að konan verði dæmd til að endurgreiða 12,7 milljónir króna. VÍSIR/PJETUR
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur höfðað mál á hendur tæplega sextugri konu sem er sökuð um að hafa á tíu ára tímabili svikið rúmlega fjórtán milljónir króna úr Tryggingastofnun ríkisins með því að innheimta lífeyrisgreiðslur sem voru ætlaðar konu sem lést árið 2000. Í ákæru lögreglustjórans kemur fram að sextuga konan blekkti Tryggingastofnun ríkisins til að greiða 14,2 milljónir króna í ellilífeyri, tekjutryggingu, uppbót lífeyris vegna umönnunarkostnaðar og tengdar lífeyrisgreiðslur með því að skila skattaframtali til skattyfirvalda vegna tekjuáranna 2000 til 2009 fyrir konuna sem lést árið 2000 og greina stofnuninni ekki frá andláti hennar.Var með prókúru á reikninginn Lífeyrisgreiðslurnar, sem námu 12,7 milljónum króna á nefndu tímabili, voru lagðar inn á bankareikning látnu konunnar í Landsbanka Íslands en ákærða, sem var með prókúru á reikninginn, tók fjármunina út með reglubundnum hætti og nýtti í eigin þágu. Telst þessi háttsemi varða 248. grein almennra hegningarlaga en þar segir: „Ef maður kemur öðrum manni til að hafast eitthvað að eða láta eitthvað ógert með því á ólögmætan hátt að vekja, styrkja eða hagnýta sér ranga eða óljósa hugmynd hans um einhver atvik, og hefur þannig fé af honum eða öðrum, þá varðar það fangelsi allt að 6 árum.“Þingfest í næstu viku Fer lögreglustjórinn fram á að konan verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Tryggingastofnun ríkisins hefur krafist þess að ákærða verði dæmd til að endurgreiða stofnuninni 12,7 milljónir króna. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur næstkomandi þriðjudag.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira