Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar tvö kynferðisbrot Birgir Olgeirsson skrifar 4. ágúst 2015 15:33 Úr Herjólfsdal. Vísir/Óskar P. Friðriksson.
Lögreglunni í Vestmannaeyjum er með tvö kynferðisbrot til rannsóknar sem áttu sér stað á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum en fyrr í dag var sagt var þremur ungum konum sem höfðu leitað á neyðarmóttöku Landspítalans í Fossvogi vegna kynferðisbrota á Þjóðhátíð. Lögreglan í Vestmannaeyjum segir fyrra málið hafa komið inn á borð lögreglu aðfaranótt sunnudags og segir að meint brot eigi að hafa átt sér stað í kringum miðnætti kvöldið áður. Lögreglan segir þolandann vera unga stúlku sem fékk viðeigandi aðstoð og var flutt á neyðarmóttöku á Landspítalanum í Reykjavík og var henni úthlutaður réttargæslumaður. Segir lögreglan rannsókn málsins að mestu lokið en óljóst um málsatvik.Skipulögð leit að sakborningi Seinna málið var tilkynnt lögreglu að kvöldi sunnudags en á að hafa átt sér stað eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags. Lögreglan segir um tengda aðila að ræða og fékk konan viðeigandi aðstoð og var flutt á neyðarmóttöku á Landspítalanum í Reykjavík og var henni úthlutaður réttargæslumaður. Vettvangur var rannsakaður og sakborningur handtekinn af lögreglu skömmu eftir tilkynningu þar sem skipulögð leit fór fram að honum í Herjólfsdal. Málið telst upplýst og rannsókn vel á veg komin.Sex minniháttar líkamsárásir Lögreglan segir engar alvarlegar líkamsárásir hafa verið kærðar til lögreglu en sex mál vegna minniháttar líkamsárásar rannsóknar án þess þó að hafa verið kærðar. Eitt mál kom upp er varðar nytjastuld og eignaspjöll og telst það upplýst.72 fíkniefnamál 72 fíkniefnamál komu upp og hafa aldrei verið fleiri en lögreglan segir það vera vegna mikils eftirlits. Mest var haldlagt af hvítum efnum og í að minnsta kosti 5 þeirra var um sölu og dreifingu að ræða. Að mati lögreglu þykir þessi árangur í fíkniefnamálum hafa komið í veg fyrir alvarleg ofbeldisbrot þar sem þekkt er að af neyslu hvítra efna verða menn árásargjarnari en ella.Áfallateymi aðstoðaði fólk vegna sjálfsvígshugsana, kvíða og fleira Lögregla telur 15.000 manns hafa sótt þjóðhátíð Vestmannaeyja að þessu sinni. 26 lögreglumenn sinntu löggæslu og 100 gæslumenn. Auk þeirra var starfandi læknir í dalnum og annað heilbrigðisstarfsfólk, áfallateymi og sjúkraflutningamenn. Áfallateymi aðstoðaði fólk við ýmis mál svo sem sjálfsvígshugsanir, kvíða og fleira. Barnaverndarstarfsmenn sinntu auk þess málum barna undir 18 ára aldri sem komu upp á hátíðinni.„Það er miður að upp hafi komið kynferðisbrot“ Lögreglan segir þessa Þjóðhátíð hafa farið vel fram miðað við fyrri hátíðir. Segir hún viðbragð í sjúkraskýli, hjá áfallateymi og barnavernd hafa verið gott og fjölmörgum sem var sinnt vegna mismunandi erfiðleika. „Það er miður að upp hafi komið kynferðisbrot en áhersla var á vönduð og fagleg vinnubrögð við þeim þar sem rannsóknarhagsmunir og hagsmunir brotaþola voru settir í forgang. Það er mat lögreglu og áfallateymis að vel hafi tekist til með að senda ekki tafarlausar upplýsingar um alvarlegustu brotin til fjölmiðla heldur að veita slíkar upplýsingar á réttum tímapunkti eins og alltaf hafi staðið til,“ segir lögreglan í Vestmannaeyjum í tilkynningu til fjölmiðla.
Tengdar fréttir Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum: Erfitt að koma í veg fyrir kynferðisbrot á fjölmennum útihátíðum Þrjár konur leituðu á neyðarmóttöku vegna kynferðisbrota á Þjóðhátíð. 4. ágúst 2015 13:47 Þrjár konur leituðu á neyðarmóttöku vegna kynferðisbrota á Þjóðhátíð Leituðu á neyðarmóttöku í Reykjavík. 4. ágúst 2015 12:36 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Sjá meira
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum: Erfitt að koma í veg fyrir kynferðisbrot á fjölmennum útihátíðum Þrjár konur leituðu á neyðarmóttöku vegna kynferðisbrota á Þjóðhátíð. 4. ágúst 2015 13:47
Þrjár konur leituðu á neyðarmóttöku vegna kynferðisbrota á Þjóðhátíð Leituðu á neyðarmóttöku í Reykjavík. 4. ágúst 2015 12:36