Margir hafa reynt að smygla sér í fótboltagolf að nóttu til Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. ágúst 2015 18:03 Fótboltagolfvöllurinn í Grafarvogi hefur notið mikilla vinsælda í sumar. Vísir
Fjölmargir hafa á næturna lagt leið sína í Skemmtigarðinn Grafarvogi í því skyni að spila fótboltagolf á nýopnuðum velli þrátt fyrir að garðurinn loki um klukkan tíu á kvöldin. Þetta segir eigandi garðsins, Eyþór Guðjónsson í samtali við Vísi. „Þetta byrjaði um leið og við opnuðum. Núna um helgina síðustu voru hér nokkrir hópar, menn mæta með eigin bolta og sumir með golfkylfur líka. Ætla að reyna að komast í ókeypis minigolf,“ segir Eyþór. Næturvörður er á staðnum yfir nóttina og sá vísar næturgestum í burtu enda kostar að nýta sér þjónustuna. Eyþór segir stóra hópa hafa komið til að spila fótboltagolfið á næturna, allt upp í tíu manns. „Heilu vinahóparnir eru að mæta hingað,“ segir hann hlæjandi. Eyþór er ansi sáttur við hversu vel fótboltagolfið hefur slegið í gegn en bjóst þó ekki við þessum tíðu næturheimsóknum.Eyþór er hissa á næturheimsóknunum en sér viðskiptahliðina og íhugar nú að lengja opnunartíma garðsins.Vísir/EyþórFótboltagolf hefur notið vinsælda um allan heim undanfarin ár en völlurinn sem um er rætt opnaði í lok júní síðastliðnum. Allt upp í sex geta spilað saman á hverri braut. Hver keppandi fær einn fótbolta, stillir honum upp og sparkar honum með fram brautinni. Sá sigrar sem fer brautirnar í fæstum spörkum. „Það er ekki eins og þetta sé dýrt, það kostar fimmtán hundruð á manninn og þá máttu spila eins mikið og þú vilt,“ segir Eyþór sem er hissa á hversu margir hafa reynt að komast á völlinn að næturlagi. „Þetta var svo mikið um daginn að við vorum að velta því fyrir okkur að láta næturvörðinn hafa posa,“ segir hann og hlær en starfsmennirnir hafa húmor fyrir athæfinu. „Auðvitað á þetta ekkert að vera svona en okkur finnst þetta bara svo fyndið. Svo eru menn alltaf jafnhissa: „Ó kostar? Ha?“ Ég held að við bregðumst við næsta sumar, við erum að spá í að hafa opið allan sólarhringinn.“
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Fleiri fréttir Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Sjá meira