Segir Stellu Briem hafa átt upptökin að átökunum Birgir Olgeirsson skrifar 5. ágúst 2015 12:45 Stella segir þrjár stelpur hafa ráðist að sér við hvítu tjöldin í dalnum. myndir/stella
Garðar St. Ólafsson lögmaður hefur sent fjölmiðlum orðsendingu vegna frétta af atviki á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sem varðar Stellu Briem Friðriksdóttur, formann Feministafélags Verzlunarskóla Íslands. Stella Briem sagðist hafa orðið fyrir árás á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og sagði ástæðuna fyrir árásinni hafa verið að hún er yfirlýstur femínisti.Sjá einnig:„Ég var lamin á Þjóðhátíð fyrir að vera feministi“ Garðar segir eina af stúlkunum, sem Stella sakar um að hafa ráðist á sig, hafa leitað til sín vegna málsins en Garðar segist undrast að nær allir fjölmiðlar á Íslandi hafi tekið gagnrýnislaust upp frásögn drukkins unglings í slagsmálum á Þjóðhátíð. „Það er væntanlega oftast þannig þegar deilur verða í skemmtanalífi að hver þátttakandi hefur sína sögu af því og væntalega upplifa sig nær allir sem blásaklaus fórnarlömb þegar sagan er sögð síðar,“ segir Garðar St. í yfirlýsingunni. Hann segir þá frásögn sem hafa farið sem eldur í sinu um internetið vera langt frá sannleikunum samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hefur. „Enginn sem kom að atvikum vissi hver Stella Briem var áður en hún öskraði: "Veistu ekki hver ég ER?" á fólk sem hafði gerst svo djarft að biðja um að komast fram hjá henni í mannþröng,“ segir Garðar. Hann segir femínisma eða aðrar stjórnmálaskoðanir ekki hafa tengst atburðarásinni með öðrum hætti. „En að það virtist æsa Stellu Briem mjög að ókunnugt fólk vissi ekki að hún væri formaður Femínistafélags Verzlunarskóla Íslands.“ Garðar segir engan hafa ráðist á Stellu að fyrra bragði, en segir að til átaka hafa komið eftir að Stella stökk á aðra stúlku og rifið í hár hennar. Hann segir ekki liggja fyrir hvort Stella Briem hafi farið með sína sögu til lögreglu og segir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu ekki kannast við neina kæru frá henni eða að lögreglan sé með þetta mál til rannsóknar.Sjá yfirlýsinguna frá Garðari hér fyrir neðan:Leitað hefur til mín stúlka sem Stella Briem Friðriksdóttir hefur ásakað um að hafa ráðist á sig í Vestmannaeyjum. Stella Briem hefur nafngreint hana á twitter, en hún óskar að sjálfsögðu ekki eftir því að koma fram undir nafni.Hún og móðir hennar óska enn fremur eftir því að blaðamenn hafi ekki frekara samband við sig, en hafa falið mér að svara fyrir sína hönd um málið eftir því sem þörf er á.Satt að segja undrast ég mjög að nær allir fjölmiðlar á Íslandi hafi tekið gagnrýnislaust upp frásögn drukkins unglings af slagsmálum á Þjóðhátíð. Það er væntanlega oftast þannig þegar deilur verða í skemmtanalífi að hver þáttakandi hefur sína sögu af því og væntalega upplifa sig nær allir sem blásaklaus fórnarlömb þegar sagan er sögð síðar.Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef er sú frásögn sem fer eins og eldur í sinu um Internetið langt frá sannleikanum.Enginn sem kom að atvikum vissi hver Stella Briem var áður en hún öskraði: "Veistu ekki hver ég ER?" á fólk sem hafði gerst svo djarft að biðja um að komast fram hjá henni í mannþröng.Femínismi eða aðrar stjórnmálaskoðanir tengdust atburðarás ekki með öðrum hætti en að það virtist æsa Stellu Briem mjög að ókunnugt fólk vissi ekki að hún væri formaður Femístafélags Verzlunarskóla Íslands.Þá réðist enginn á Stellu að fyrra bragði, en til átaka kom eftir að Stella stökk á aðra stúlku og reif í hár hennar, af því er virtist fyrir að hafa dirfst að 'axla' hana og fyrir að hafa sýnt sér vanvirðingu með að vita ekki hver hún væri. Fórnarlamb árásar Stellu fór niður á lögreglustöð nú eftir helgi og reyndi að kæra árásina, en var tjáð að hún gæti ekki kært líkamsárás án áverkavottorðs.Ekki liggur fyrir hvort Stella Briem hefur farið með sína útgáfu atburðarásar til lögreglu eða hvort hún lætur nægja að dreifa henni í fjölmiðla. Lögregla á höfuðborgarsvæðinu kannast amk ekki við neina kæru frá henni eða að neitt mál sé í rannsókn. Þetta mál allt saman minnir nú á hið (ekki svo gamla) spakmæli: Eigi skal syrgja hundinn Lúkas fyrr en dauður er og varast ber að trúa öllu sem lesið er á Internetinu.
Tengdar fréttir „Ég var lamin á Þjóðhátíð fyrir að vera feministi“ Þjár ókunnugar stelpur réðust á Stellu Briem á Þjóðhátíð í Eyjum. 3. ágúst 2015 15:22 Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira
„Ég var lamin á Þjóðhátíð fyrir að vera feministi“ Þjár ókunnugar stelpur réðust á Stellu Briem á Þjóðhátíð í Eyjum. 3. ágúst 2015 15:22