Rússneskar herflugvélar í tvígang flogið nálægt Íslandi á árinu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. ágúst 2015 15:30 Rússneski björninn hefur verið að fara á stjá. VÍSIR/AFP
Flugvélar rússneska hersins hafa í tvígang flogið nærri Íslandi það sem af er árinu en mikið hefur verið að gera hjá flugsveitum NATO í Evrópu vegna slíkra fluga rússneska hersins. Í raun svo mikið að leita þarf aftur til kalda stríðsins til þess að finna dæmi um jafn mikinn fjölda aðgerða. Alls hafa flugsveitir NATO farið í 250 aðgerðir vegna flugferða rússneskra herflugvéla og hafa tvær af þeim verið vegna fluga í nágrenni Íslands samkvæmt upplýsingum frá Utanríkisráðuneytinu og Landhelgisgæslunni. Þann 19. febrúar sl. flugu tvær Tupolev Tu-95 herflugvélar mjög nálægt Íslandi. Þær voru í aðeins 26 sjómílna fjarlægð frá Stokksnesi og hafa þær ekki komið svo nálægt Íslandi frá því að kalda stríðinu lauk. Mánuði síðar eða þann 19. mars sl. flugu tvær slíkar vélar aftur í nágrenni Íslands en þó í meiri fjarlægð í þetta skiptið eða í um 80 sjómílur suðaustur af Stokksnesi. Flugsveitir frá Bretlandi og Noregi tóku á móti flugvélunum og fylgdu þeim úr hlaði en í febrúar og mars voru engar flugsveitir staðsettar á Keflavíkurflugvelli til þess að sinna eftirliti á loftrýmiseftirlitssvæði NATO í nágrenni Íslands. Tékkneskar flugsveitir komu til landsins þann 23. júlí sl. til þess að sinna loftrýmiseftirliti. Mest mæðir á loftrýmiseftirliti NATO í Eystrasaltsríkjunum vegna flugferða rússneska hersins yfir evrópskri lofthelgi. Hefur loftrýmisgæslan í Eystrasaltsríkjunum séð um 120 af aðgerðunum 250. Hefur það leitt til þess að bandalagið hefur tvöfaldað stærð þeirra flugsveita sem sjá um loftrýmisgæsluna á því svæði.
Tengdar fréttir NATO stendur í ströngu Flugsveitir bandalagsins ekki þurft að grípa til jafn margra aðgerða gegn flugi flugsveita rússneska hersins síðan kalda stríðinu lauk. 31. júlí 2015 13:09 Segir NATO þjóðirnar þurfa að standa saman gegn Rússlandi „Við viljum ekki gera Rússland að óvini, en við munum verja bandamenn okkar.“ 22. júní 2015 13:26 Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira
NATO stendur í ströngu Flugsveitir bandalagsins ekki þurft að grípa til jafn margra aðgerða gegn flugi flugsveita rússneska hersins síðan kalda stríðinu lauk. 31. júlí 2015 13:09
Segir NATO þjóðirnar þurfa að standa saman gegn Rússlandi „Við viljum ekki gera Rússland að óvini, en við munum verja bandamenn okkar.“ 22. júní 2015 13:26