Innlent

Fangi af Litla-Hrauni nýtti ferð til tannlæknis og flúði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sex lögreglubílar voru á ferðinni í kringum gatnamót Þverholts og Rauðarárstígar á þriðja tímanum í dag í leit að fanganum.
Sex lögreglubílar voru á ferðinni í kringum gatnamót Þverholts og Rauðarárstígar á þriðja tímanum í dag í leit að fanganum. Vísir/Hrönn
Fjölmennt lið lögreglu var ræst út um tvöleytið í dag eftir að fangi slapp úr haldi fangavarða í Reykjavík. Verið var að flytja fangann til tannlæknis nærri Hlemmi þegar hann tók á rás og flúði.

Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir í samtali við Vísi að fanginn hafi sloppið en svo fundist nokkrum mínútum síðar, sem betur fer. Hann sagðist enn þá vera að taka saman upplýsingar vegna flóttans. Honum væri samt létt að fanginn hefði fundist jafnfljótt og varð raunin.

Páll Winkel.
„Þetta er maður sem maður hefði ekki viljað sjá lausan mjög lengi,“ segir Páll. „Lögregla brást skjótt við og þetta gekk upp.“

Stutt er síðan tveir fangar flúðu af Kvíabryggju og vakti flóttinn nokkra athygli í fjölmiðlum enda ekki algengt að föngum takist að strjúka. Flóttinn nú var annars eðlis. Um fanga úr lokuðu fangelsi var að ræða, Litla-hrauni, og var verið að flytja hann til borgarinnar í skoðun hjá tannlækni.

Maðurinn var ekki í handjárnum og segir Páll að tekin sé ákvörðun hverju sinni hvort notast eigi við hand- og fótjárn eða ekki.

Sjá einnig: Eftirminnilegir fangar á flótta á Íslandi

„Við gætum að mannvirðingu eins og við getum þannig að menn eru ekki fluttir í hand- og fótjárnum hverju sinni,“ segir Páll. Málið verði nú yfirfarið og reynt að búa svo um hnútana að svona endurtaki sig ekki. Flóttar sem þessir séu sjaldgæfir en komi þó fyrir.

Fanginn hefur setið inni í nokkra mánuði og á einnig mánuði eftir af afplánun. Flóttinn mun ekki lengja afplánun hans en getur þó haft áhrif á reynslulausn. Þá fái menn sem strjúka ekki að afplána í opnum fangelsum.

„Það græðir enginn á þessu, allra síst fanginn.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×