Innlent

Breyttu dósum og flöskum í leikskóla í Kenýa

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Paul Ramses, Fídel Smári og Rosmary Odhiambo.
Paul Ramses, Fídel Smári og Rosmary Odhiambo. vísir/anton
„Í sex mánuði fórum við allar helgar niður í bæ og söfnuðum flöskum,“ segir Rosmary Atieno Odhiambo í viðtali við Bæinn okkar. Hún og eiginmaður hennar, Paul Ramses, nýttu peninginn úr flöskusöfnuninni, rúma milljón króna, til að koma á fót leikskóla í Kenía. Flest börnin í skólanum eru munaðarlaus eða börn einstæðra mæðra.

Hjónin fengu pólitískt hæli hér á landi árið 2010 efir langa og stranga baráttu. Ramses kom hingað til lands sem skiptinemi en sótti síðar um hæli hér á landi. Í júlí 2008 var Ramses vísað úr landi en á þeim tíma var eiginkona hans nýbúin að ala þeim barn. Nú búa þau ásamt börnum sínum tveimur á Völlunum í Hafnarfirði.

„Það er mikil fátækt á þessu svæði og fátækt fylgir oft skortur á menntun og fáfræði er ein helsta ógnin við mannréttindi,“ segir Ramses. Hann bætir við að margar mæður á svæðinu hafi ekki efni á að fæða börnin sín og einhverjar hafi tekið upp á því að selja þau í vændi.

Auk dósatínslunnar hafa þau selt ýmsa handgerða muni um hverja helgi í Kolaportinu. Peningurinn sem þau fá þaðan verður nýttur til að stofna grunnskóla á svæðinu fyrir 320 börn. Í samtali við Fréttablaðið fyrr á árinu sagði Ramses að stefnan væri að opna skólann í þessum mánuði.

Leikskólinn fékk nafnið Litla-Versló en nemendur úr Verzlunarskóla Íslands söfnuðu peningum handa verkefninu. Sömu sögu er að segja af nemendum Brekkubæjarskóla á Akranesi.

„Við erum bara tvö, við hjónin. En okkur tókst að byggja skóla fyrir 400 börn og valdefla fleiri tugi kvenna. Hugsið ykkur bara hverju við gætum áorkað ef við værum tíu, eða hundrað, eða þúsund,“ segir Rames í lok viðtalsins.

Viðtalið í heild má lesa inn á Bænum okkar.


Tengdar fréttir

Ramses kom í nótt - Tár féllu í Leifsstöð

Paul Ramses kom til Íslands í nótt á tilsettum tíma eftir að hafa flogið í gegnum Mílanó frá Ítalíu í gærkvöldi. „Já hann kom í nótt og ég fór með Rosemary konu hans að taka á móti honum," sagði Katrín Theódórsdóttir lögfræðingur hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×