Gæslan kannar neyðarkall sem barst frá sendi í Hornafirði Atli Ísleifsson skrifar 20. júlí 2015 14:44 Þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/Ernir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út eftir að neyðarkall barst frá sendi á Borgarhafnarfjalli í Hornafirði klukkan rúmlega eitt í dag. Varðskipinu Þór er nú einnig siglt í átt að svæðinu til að kanna málið. Fulltrúi Landhelgisgæslunnar staðfestir í samtali við Vísi að leit standi nú yfir og málið sé í vinnslu. „Kallið kom inn á þennan sendi og enga aðra. Það hefur ekkert heyrst af sjó. Við höfum haft samband við báta og skip á þessu svæði og þeir hafa ekkert heyrt.“ Hann segir að leit standi yfir á svæðinu og ekki sé vitað um neinar skútur sem hafi farið, hvorki frá Breiðdalsvík, Djúpavogi eða Höfn. „Það heyrðist „May Day, May Day. Við heyrðum það, en það hefur enginn annar heyrt það. Það er verið að kanna málið. Við ætlum ekki að slá þessu sem einhverju plati þar til við vitum meira.“Uppfært kl 15:21:Fréttatilkynning frá Landhelgisgæslunni:„Klukkan 13:17 heyrði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar neyðarkall á rás 16 í gegnum sendi við Höfn í Hornafirði. Engar upplýsingar liggja fyrir um hver sendir neyðarkallið en þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, lögregla og varðskipið Þór eru á leið á vettvang til leitar. Ástæða neyðarkallsins er ekki ljós en einskis er saknað á þessu svæði, hvorki báta né ferðafólks. Verið er að leita í skálum og kanna ferðir skipa á svæðinu og þannig reyna að finna tilurð neyðarkallsins. Ef einhverjir hafa nánari upplýsingar eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa umsvifalaust samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í síma 545-2100 eða við lögreglu.
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira