Strætóbílstjóri sakaður um að neita að hleypa fjögurra manna fjölskyldu úr vagninum Birgir Olgeirsson skrifar 20. júlí 2015 15:28 Fjölskyldan beið í biðskýli við Vonarstræti þegar bílstjórinn ók fram hjá þeim. Vísir/Ernir
Strætó bs. er með til skoðunar atvik sem átti sér stað í Reykjavík síðastliðinn föstudag. Er strætóbílstjóri sakaður um að hafa neitað að hleypa ungri fjögurra manna fjölskyldu út úr strætisvagninum. „Þetta er ekki eitthvað sem við tökum léttvægt á,“ segir Ástríður Þórðardóttir, fjármálastjóri Strætó bs., í samtali við Vísi um málið. Hún segir Strætó bs. vera búið að ræða við fjölskylduna og að vitað sé hver umræddur bílstjóri er og að hann verði boðaður á fund vegna málsins. Samkvæmt heimildum Vísis á atvikið að hafa gengið þannig fyrir sig að þessi fjögurra manna fjölskylda stóð í biðskýli við Ráðhús Reykjavíkur í Vonarstræti þegar strætisvagn sem hún hafði beðið eftir ók fram hjá henni. Fjölskyldan hljóp á eftir vagninum og gaf bílstjóranum merki um að stöðva sem hann gerði og hleypti henni inn. Þegar þangað var komið taldi strætóbílstjórinn sig ekki hafa fengið nægjanlega sönnun fyrir því að miðakaup hefðu átt sér stað í gegnum strætó-appið. Þegar sá misskilningur hafði verið leiðréttur upphófust orðaskipti á milli foreldranna og strætóbílstjórans þar sem skipst var á ásökunum um dónaskap. Þegar komið var á Hofsvallagötu gáfu foreldrarnir bílstjóranum merki um að fjölskyldan ætlaði úr vagninum. Bílstjórinn er sagður hafa stoppað á réttum stað en neitað að opna fyrir fjölskyldunni og hleypa henni út. Þegar fjölskyldufaðirinn bað bílstjórann um að hleypa þeim út á bílstjórinn að hafa tjáð þeim að þau færu ekki fet fyrr en hann hefði rætt við þjónustuver Strætó bs. um hegðun foreldranna. Er einn farþeganna, ótengdur fjölskyldunni, sagður hafa á þeim tímapunkti heimtað að bílstjórinn hleypti honum út. Á fjölskyldan að hafa nýtt sér tækifærið og komið sér úr vagninum þegar bílstjórinn opnaði fyrir farþeganum.
Tengdar fréttir Vagnstjóri sem staðinn var að glæfraakstri ekur ekki lengur á vegum Strætó „Búið að afgreiða það mál,“ segir forstjóri Hópbíla. Maðurinn sást taka fram úr fólksbíl á miklum hraða á Akrafjallsvegi. 14. júlí 2015 15:28 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Vagnstjóri sem staðinn var að glæfraakstri ekur ekki lengur á vegum Strætó „Búið að afgreiða það mál,“ segir forstjóri Hópbíla. Maðurinn sást taka fram úr fólksbíl á miklum hraða á Akrafjallsvegi. 14. júlí 2015 15:28