Lá við stórslysi þegar flutningabíl var ekið á hæðarslá Hvalfjarðarganga Birgir Olgeirsson skrifar 22. júlí 2015 15:06 Sem betur varð ekki stórslys. Vísir/Youtube
Gámur á flutningabíl lenti harkalega á hæðarslá yfir suðurmunna Hvalfjarðarganga að kvöldi fimmtudagsins 16. júlí. Spölur ehf. hefur birt myndband af atvikinu en þar sést hvernig lá nærri við stórslysi en tvær af þremur stálkeðjum héldu 600 kílóa þungum stálbitanum uppi eftir áreksturinn. Farmur bílsins var vel yfir löglegri hæð, sem er 4,2 metrar. Flutningabíllinn var á suðurleið þegar hann lenti af miklu afli á hæðarslánni þvert yfir akbrautum við suðurmunna ganganna, stálbita sem er í yfir 4,2 metra hæð. Bitinn var skrúfaður fastur með stálboltum í sæti beggja vegna og hékk auk þess í þremur digrum stálkeðjum. Þessum bita eða hæðarslá er ætlað marka löglega hámarkshæð farms og verja jafnframt allan þann raf- og fjarskiptabúnað sem er í lofti ganganna. Við höggið slitnuðu boltar beggja vegna, bitinn losnaði og sleit eina af öryggiskeðjunum, en til þess þurfti margra tonna átak. Bitinn sveiflaðist við höggið upp í kapalkerfi ganganna, rauf þar straum og sló niður eftirlitsmyndavél sem sést skoppa eftir malbikinu augnabliki áður en næsta bíl ber þar að. „Til allrar hamingju slitnaði aðeins ein öryggiskeðjan, augljóslega þarf ekki að hafa mörg orð um hvað hefði getað gerst þarna ef fleiri keðjur hefðu gefið sig og bitinn fallið niður, allur eða annar endi hans,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu um málið. Spölur ehf. ákvað að birta upptökuna úr eftirlitskerfinu til að sýna mögulegar afleiðingar þess ef bílstjórar og farmflytjendur gæta þess ekki að hæð á farmi í flutningum sé innan ramma laga og reglna. Þá eru aðrir bílstjórar beðnir að gæta þess í öryggisskyni að hafa gott bil framan við sig þegar þeir fara á eftir flutningabílum undir brýr í samgöngukerfinu eða hæðarslár í Hvalfjarðargöngum.
Tengdar fréttir „Bitarnir eru jafn háir“ Öryggisfulltrúi Spalar ehf. segist ekki vita hvers vegna bíllinn rakst einungis í hæðarslána við suðurmunna Hvalfjarðarganga. 22. júlí 2015 16:48 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira
„Bitarnir eru jafn háir“ Öryggisfulltrúi Spalar ehf. segist ekki vita hvers vegna bíllinn rakst einungis í hæðarslána við suðurmunna Hvalfjarðarganga. 22. júlí 2015 16:48