Landsvirkjun 50 ára: Gróðursettu tré í Jóhannesarlundi við Búrfellsstöð Atli Ísleifsson skrifar 1. júlí 2015 17:23 Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar 1965 til 1995, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, við gróðursetningu fyrsta trésins í Jóhannesarlundi fyrr í dag. Mynd/Landsvirkjun
Sérstakur lundur til heiðurs Jóhannesi Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóra, var vígður í við Búrfellsvirkjun fyrr í dag í tilefni 50 ára afmælis Landsvirkjunar. Jóhannesarlundur var vígður á samkomu núverandi og fyrrverandi starfsmanna fyrirtækisins í dag þar sem fimmtíu tré voru gróðursett, eitt fyrir hvert starfsár Landsvirkjunar. Jóhannes var fyrsti stjórnarformaður Landsvirkjunar og gegndi hann því starfi í 30 ár og lét af störfum 30. júní 1995. Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að fyrirtækið hafi verið stofnað 1. júlí árið 1965, í tengslum við byggingu Búrfellsvirkjunar. Stofnendur og helmingshluthafar hafi verið íslenska ríkið og Reykjavíkurborg en nú er ríkið eini eigandi fyrirtækisins. „Í tilefni af 50 ára afmælinu hefur Landsvirkjun m.a. staðið fyrir opnum fundum um málefni er varða fyrirtækið. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og kalla á opin samskipti við hagsmunaaðila um allt land um málefni sem tengjast starfsemi fyrirtækisins. Fyrir utan opinn ársfund fyrirtækisins í Hörpu 5. maí sl. hafa verið haldnir tveir fundir um loftslagsmál, fundir með íbúum á Norðausturlandi um Þeistareykjavirkjun og á Suðurlandi um stækkun Búrfells. Einnig bauð Landsvirkjun til fundar um þarfir gagnavera í júnímánuði. Aðsókn að fundunum hefur verið mjög góð. Hefur þeim öllum verið streymt beint á vefsíðu Landsvirkjunar, landsvirkjun.is, og er hægt að horfa á upptökur af fundunum á Youtube rás Landsvirkjunar www.youtube.com/landsvirkjun. Í haust verða haldnir fleiri opnir fundir. Í tilefni af afmælinu mun Landsvirkjun einnig setja upp gagnvirka sýningu um orku og endurnýjanlega orkugjafa í Ljósafossstöð og verður hún opnuð síðar í sumar. Eftir sem áður verða orkusýningar Landsvirkjunar opnar í sumar í gestastofum við Kröflustöð og Búrfellsstöð.“
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira