Undirskriftasöfnun gegn Tyson talin lýsa forneskjulegum viðhorfum Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. júlí 2015 16:49 Formaður Afstöðu er óánægður með undirskriftasöfnun gegn Mike Tyson. Pawel Bartoszek telur hana rasíska. Vísir
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir sorglegt að viðhorf um að einstaklingur skuli aldrei hljóta uppreisn æru séu enn við lýði á Íslandi í dag í bloggi sem birtist á vefsíðu Afstöðu í dag. Pistillinn ber titilinn: „Að fyrirgefa aldrei - ALDREI.“ Tilefnið er undirskriftasöfnun sem hópurinn Aktivistar gegn nauðgunarmenningu hafa hrundið af stað til að mótmæla komu hnefaleikakappans Mike Tyson til landsins. „Hvernig getum við ætlast til þess að einstaklingur sem hefur setið af sér dóm geti breyst og betrast ef að samfélag manna mun aldrei taka hann í sátt að nýju – ALDREI,“ spyr Guðmundur. Hann bendir á að sýningin sem Mike Tyson hyggst koma með til landsins fjalli um líf hans, erfiða æsku, brotna fjölskyldu. Hún segi frá einstaklingi sem flosnaði upp úr skóla, leiddist út í glæpi og fíkniefnaneyslu og endaði í fangelsi. Forneskjuleg viðhorf Drög hafa verið lögð að breyttu kerfi á Íslandi sem mun byggjast á betrun í stað refsihyggju. „Vonir standa til að slíkt frumvarp verði innleitt í lög á næsta löggjafarþingi. Enn virðist þó refsihyggjan vera ríkjandi hjá fámennum hópi hér á landi, þrátt fyrir að rannsóknir og reynsla á Norðurlöndunum sýni að sú stefna sem þar hefur verið innleidd, sem byggir á betrun þar sem lögð er áhersla á menntun og aðstoð að afplánun lokinni, hefur skilað gífurlegum árangri: færri endurkomum í fangelsi og virkri jákvæðri þátttöku í samfélaginu að lokinni afplánun,“ skrifar Guðmundur.Sjá einnig: Tyson ekkert velkominn„Í dag er kominn tími fyrir "zero tolerance“, það er komið nóg af því að leyfa mönnum að njóta vafans trekk í trekk þegar þeir sýna engin merki um betrun,“ sagði forsvarskona söfnunarinnar.Mynd/aðsend„Það er því með hreinum ólíkindum að verða vitni að forneskjulegum viðhorfum þar sem hópur manna í samfélagi vill gera aðra hornreka. Það er nefnilega ekki nóg að líta bara svo á að tilgangur fangavistar eigi að vera betrun ef samfélagið er síðan ekki tilbúið til að samþykkja einstaklinginn að afplánun lokinni. Við eigum því að fagna þegar fólk eins og Mike Tyson kemur fram með það að markmiði að nýta reynslu sína, öðrum víti til varnaðar, samfélaginu öllu í hag.“Fleiri lýsa andúð sinni á undirskriftarsöfnuninni Guðmundur hvetur alla þá sem hafa áhuga á að hlýða á breyttan mann segja frá torfarinni sögu sinni að fara á sýningu Tyson. „Jafnframt sem ég býð til uppbyggilegrar og málefnalegrar umræðu um betrunarstefnuna á Facebook-síðu Afstöðu.“ Fleiri hafa lýst yfir óánægju sinni með undirskriftarsöfnunina. Þar má nefna Pawel Bartoszek sem telur að í henni felist í raun rasismi. „Paul McCartney notaði börn sín sem burðardýr fyrir eiturlyf. John Lennon lamdi allar konur sem hann kom nálægt. En það loðir betur við svart fólk að vera skrímsli. Þeim ert aldrei fyrirgefið,“ skrifaði Pawel á Facebook í dag.Paul McCartney notaði börn sín sem burðardýr fyrir eiturlyf. John Lennon lamdi allar konur sem hann kom nálægt. En það loðir betur við svart fólk að vera skrímsli. Þeim ert aldrei fyrirgefið.Posted by Pawel Bartoszek on Saturday, July 4, 2015Yfir hundrað manns hafa líkað við færsluna. Þá telur rithöfundurinn Mikael Torfason ekki rétt að segja að þöggun ríki um ofbeldi Tyson. „Maðurinn sat í fangelsi í nokkur ár. Ég held það sé oftast tekið fram í umfjöllun um manninn.“ Hann tekur undir orð Pawels og vísar í frétt Vísis í dag.Það er náttúrulega lítil þöggun um ofbeldi Tyson. Maðurinn sat í fangelsi í nokkur ár. Ég held það sé oftast tekið fram ...Posted by Mikael Torfason on Saturday, July 4, 2015
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Sjá meira