Verðhækkanir eftir nýja kjarasamninga Linda Blöndal skrifar 9. júlí 2015 19:30
Nýlegar verðhækkanir á mat og nauðsynjavörum ógna nýjum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, segir Sigurður Bessason, varaformaður ASÍ og formaður Eflingar stéttarfélags en fyrirvarar eru í samningunum um að verðhækkanir verði hóflegar. Vísbendingar eru um hið gagnstæða segir Sigurður. Margskonar matvara hækkarSamkvæmt Neytendasamtökunum hafa 17 birgjar hækkað verð síðan 20.júní vegna nýgerðra kjarasaminga og sum staðar hækkað áður en samningar voru frágengnir. Verðið rís um tvö til fimmtán prósent eftir vöruflokkum. Þetta er og kjöt, grænmeti, brauð og hreinlætisvörur – og gos og sælgæti. Íslenskar kjötvinnslur hækka nautakjöt um tvö prósent, grísakjöt tvö og hálft prósent og lambakjöt um þrjú prósent. Neytendasamtökin birtir lista í 24 liðum yfir hækkanirnar sem tóku gildi frá 1.maí síðastliðnum og þar sem fleiri hækkanir eru boðaðar. Kjarasamningar á almenna vinnumarkaðnum við Samtök atvinnulífsins voru gerðir í lok maí og fyrst var greitt eftir þeim 1.júlí. Úthald nauðsynlegt„Kjarasamningarnir eru til þriggja ára og þeim er ætlað að skapa stöðugleika. Menn þurfa að hafa úthald og ekki gleyma því að síðastliði ár bjuggum við við gríðarlega lága verðbólgu, áður óþekktri tölu, fórum niður í eitt prósent", sagði Sigurður í fréttum Stöðvar 2. „Fyrirtæki hafa klárlega átt að hafa ákveðna burði til þess að fara inn í þessa kjarasamninga og leggja sitt af mörkum svo þessir samningar haldi", sagði Sigurður. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins ítrekar fyrri orð sín í dag í Fréttablaðinu um að nýlegir samningar kveði á um launahækkanir sem fari út fyrir það svigrúm sem vinnuveitendur hafi og vonar að þeir hagræði eins mikið og hægt er í stað þess að hækka verð sem valdi verðbólgu. Fleira en launaliðurinn Hækkunin er líka rakin til hærra innkaupaverðs erlendis frá og orkuverðs en launaliðurinn er þó oftast nefndur í skýringum fyrirtækjanna sjálfra sem Neytendasamtökin hafa fengið sendar. „Ég tel að skilaboðin sem að menn séu að senda út byggi einfaldlega á röngum forsendum. Þarna er bara ákveðin græðgi í gangi. Ég tel að menn séu hér að velta inn í verðlagið hækkunum sem eigi ekki grunn í kjarasamningunum", segir Sigurður en enn fremur muni hann fagna niðurfellingu allra tolla nema á matvöru, líkt og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra hefur boðað frá næstu áramótum. Siguður segist þó setja varann á þar sem nýleg niðurfelling sykurskatts hafi skilað sér til sinna skjólstæðinga.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Fleiri fréttir Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sjá meira