Aldrei fleiri skemmtiferðaskip í Reykjavíkurhöfn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. júní 2015 13:45 Skipin Celebrity Eclipse og Nautica við Skarfabakka. vísir/vilhelm
Fimm skemmtiferðaskip eru nú í Reykjavíkurhöfn og segist Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, ekki muna eftir fleiri skipum á einum og sama deginum. Eitt skipanna er við Korngarð, tvö við Skarfabakka, eitt við Miðbakka og eitt við Faxagarð. „Eitt skipið átti nú að koma í gær en það var við Grænland og lenti í vandræðum vegna íss. Það tafðist því og kom ekki fyrr en í dag,“ segir Ágúst í samtali við Vísi. Samtals koma 4775 farþegar með skipunum fimm. Ágúst segir að í sumar verði skipakomur 103 talsins og að með þeim komi rétt rúmlega 100 þúsund farþegar. Það séu aðeins fleiri skip en komu seinasta sumar en svipaður farþegafjöldi svo um smærri skip er að ræða í ár. Aðspurður hvort að nú komi skip á hverjum degi til hafnar í Reykjavík segir Ágúst svo vera. „Já, það er nánast yfir hásumarið skip á hverjum degi, frá því í júlí og fram í ágúst.“ Jóhann Bogason, starfsmaður hjá TVG Zimzen sem þjónustar skemmtiferðaskipin, segir mikið umstang fylgja því að þjónusta stór skemmtiferðaskip. Það er því nóg að gera hjá starfsmönnum fyrirtækisins í dag en þeir sjá meðal annars um að útvega varahluti fyrir skipin ásamt öllum samskiptum við höfn, toll og útlendingaeftirlit.
Tengdar fréttir 5000 manns koma til Ísafjarðar í dag með skemmitferðaskipum Um 2700 manns búa í bænum. 26. júní 2015 09:10 Sprengitoppar í fjölda ferðamanna Síðustu ár hefur orðið mikil aukning á komu skemmtiferðaskipa hingað til lands. 26. júní 2015 12:01 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
5000 manns koma til Ísafjarðar í dag með skemmitferðaskipum Um 2700 manns búa í bænum. 26. júní 2015 09:10
Sprengitoppar í fjölda ferðamanna Síðustu ár hefur orðið mikil aukning á komu skemmtiferðaskipa hingað til lands. 26. júní 2015 12:01