Tolli boðar til mannfagnaðar 27. júní 2015 10:00
Tolli Morthens var gestur Viktoríu Hermannsdóttur og Ólafar Skaftadóttir í Föstudagsviðtalinu , sem hægt er að hlusta á í heild sinni hér . Í viðtalinu lýsir hann baráttu sinni við erfið veikindi undanfarið eftir að hann greindist með krabbamein í blöðru. Nú lítur út fyrir að hann sé laus við meinið og hann stígur út í lífið með stómapoka, þakklátur fyrir að vera á lífi og fá tækifæri til að njóta lífsins. Í viðtalinu ræddi hann um ástandið á Landspítalanum, fjölskylduna sína, hugleiðslu sem hann stundar af miklum móð, pólítík og fjölskyldusjúkdóminn alkóhólisma. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er Tolli nýbúinn að gefa út bókina Icelandic Artscapes. „Þetta hefur verið draumur lengi. Okkur langaði að búa til hughrif með málverkunum og texta sem ég skrifaði þegar ég var í klaustri. Þessi bók, mér finnst hún öðruvísi.”Tolli heldur áfram og segir bókina hverfast um hvaða áhrif hver landsfjórðungur hefur haft á hans myndlist. „Ég hafði aldrei pælt í því en þegar ég fór að vinna þetta þá sá maður að karakter landsfjórðunganna er mjög mismunandi og skilar sér á mjög mismunandi hátt í myndunum mínum.” Tolli býður öllum Íslendingum til mannfagnaðar til að fagna heilsunni og bókinni. „Þetta er að Hólmaslóð 2 úti á Granda klukkan tvö í dag. Það eru allir velkomnir."
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira