Vildi skýrara umboð eftir landsfund Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 28. júní 2015 13:39
Formaður Samfylkingarinnar segir að hann hefði viljað kalla fram allsherjaratkvæðagreiðslu flokksmanna sinna eftir síðasta landsfund til að fá skýrara umboð frá flokksmönnum. En hann vann formannskosningu á landsfundi með aðeins eins atkvæðis mun. Það vakti athygli þegar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingmaður Samfylkingarinnar tilkynnti með sólarhringsfyrirvara að hún ætlaði að fara gegn Árna Páli Árnasyni formanni flokksins á landsfundi sem haldinn var í mars á þessu ári. Árni Páll var naumlega endurkjörinn formaður með aðeins eins atkvæðis mun. Árni Pál fékk 241 atkvæði en Sigríður Ingibjörg 240. Árni Páll var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi stöðu Samfylkingarinnar og sína eigin inna flokksins. „Sá landsfundur fór eins og hann fór og mín fyrstu viðbrögð eftir hann, voru að ég hugsaði með mér: Get ég ekki með einhverjum hætti fengið skýrara umboð? og mig langaði mest til þess að reyna að finna einhverja leið til þess að kalla fram allsherjaratkvæðagreiðslu flokksmanna,“ sagði Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar. „Ég var kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu og vann þar með miklum meirihluta. Ég vildi bara fá að leggja verk mín og hugmyndir mínar í dóm allra flokksmanna. Það er því miður ekki hægt eins og lögin okkar eru.“ Árni sagði Samfylkinguna búa við stífa lagaumgjörð, sem væri ef til vill eitt af því sem þyrfti að skoða vilji Samfylkingin vera meiri fjöldahreyfing. „Formaður er kjörinn til tveggja ára og það er ekki hægt að halda landsfundi nema annað hvert ár. Þessa grundvallarreglu verður maður að virða. Ég gat ekkert óskað eftir allsherjaratkvæðagreiðslu til að fá skýrara umboð. Það verður að bíða formannskjörs sem að getur ekki farið fram fyrr en eftir tvö ár, 2017.“
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Þrír handteknir á Þingvöllum Innlent Fleiri fréttir „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Sjá meira